4.5 C
Selfoss
Home Fréttir Harpa Svansdóttir er dúx FSu á vorönn

Harpa Svansdóttir er dúx FSu á vorönn

0
Harpa Svansdóttir er dúx FSu á vorönn
Harpa Svansdóttir, dúx FSu á vorönn 2018. Mynd: FSu.

Harpa Svansdóttir er dúx Fjölbrautaskóla Suðurlands á vorönn 2018, en brautskráning fór fram laugardaginn 26. maí sl. Harpa, Vilborg María Ísleifsdóttir og Almar Óli Atlason hlutu viðurkenningu frá Hollvarðasamtökum FSu. Harpa hlaut að auki viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum og stærðfræði. Vilborg María hlaut viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í ensku, íslensku, þýsku, sögu og að auki Menntaverðlaun HÍ. Almar Óli hlaut viðurkenningu fyrir frábæran árangur í vélvirkjun.

Alls voru 109 nemendur brautskráðir. Þrjátíu og tveir nemendur luku prófi af starfs- og verknámsbrautum. Af eftirtöldum brautum lauk einn nemandi námi á hverri braut; grunnmenntabrú, sjúkraliðabrú, fyrri hluta listnámsbrautar og grunnbraut bygginga- og mannvirkjagreina. Tíu nemendur luku námi á starfsbraut, þrír á grunnbraut málmiðna, sjö í vélvirkjabraut og fimm nemendur af húsasmíðabraut. Sjötíu og sjö nemendur luku stúdentsprófi þar af einn af tveimur stúdentslínum. Skipting á línur stúdentsbrauta er eftirfarandi: fjörtíu og fjórir nemendur luku námi af opinni stúdentsbraut, sjö af alþjóðalínu, sex af félagsfræðilínu, ellefu af náttúrufræðilínu, sjö af hestalínu og þrír af viðskipta- og hagfræðilínu.

Um 64% þeirra nemenda sem luku námi af þriggja ára námsbrautum hófu nám fyrir 3 árum og eru því fyrsti hópurinn sem brautskráist alfarið skv. nýrri námskrá. Sex nemendur sem brautskrást eru 17 ára, þar af eru fjögur sem luku stúdentsprófi.

Brynja Sólveig Pálsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í félagsfræði og Mathias Bragi Ölvisson hlaut viðurkenningu fyrir frábæran árangur í félagsgreinum. Snorri Björn Magnússon hlaut viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í frönsku og heimspeki. Hekla Björk Grétarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góða ástundun og árangur í stærðfræði. Hilmar Heiðberg Björgvinsson hlaut viðurkenningu fyrir áhuga og eljusemi í handverki og hönnun. Erika Mjöll Jónsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir vinnusemi og drifkraft í íþróttum og íþróttafræðum. Dröfn Sveinsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í spænsku. Eva María Larsen Bentsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku. Steinar Hermannsson hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í rafmagnsgreinum, Sara Lind Sigurðardóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í námi á hestabraut og Magnús Vignir Árnason fyrir góðan árangur í námi á húsasmíðabraut. Steinþóra Jóna Hafdísardóttir hlaut viðurkenningu fyrir frábært framlag til starfs kórs skólans og Þórunn Ösp Jónasdóttir og Elísabet Davíðsdóttir hlutu viðurkenningar fyrir framlag sitt til félagslífs skólans.

Mynd:

(Harpa dúx)

Harpa Svansdóttir, dúx FSu vorið 2018. Mynd: FSu.