3.2 C
Selfoss

Ný bók varpar ljósi á réttir landsins

Vinsælast

Bókin Réttir á Íslandi eftir Önnu Fjólu Gísladóttur er komin út hjá Bókaútgáfunni Nýhöfn í Hveragerði. Í bókinni er fjallað um fjár- og stóðréttir víðs vegar um landið og þær skoðaðar sem mikilvægan hluta af íslenskum menningararfi.

Við vinnu að bókinni hefur Anna Fjóla safnað upplýsingum um réttir um allt land og kortlagt þær með GPS-hnitum. Samkvæmt skrám Bændasamtakanna eru um 240 réttir á landinu, en við heimildasöfnun vegna bókarinnar kom í ljós að þær eru í raun um 1.000 talsins. Margar þeirra eru fornar og hafa ekki áður verið skráðar.

Um 700 réttir eru sýndar í bókinni, allar nafngreindar, auk þess sem fróðlegur texti fylgir um 250 þeirra. Við gerð bókarinnar hefur höfundur meðal annars nýtt sér drónatækni til að mynda réttirnar ofan frá, en þannig birtast form þeirra og skipulag með skýrari hætti.

Réttirnar eru fjölbreyttar að stærð, gerð og efnisvali. Þær eru meðal annars byggðar úr grjóti, hrauni, torfi, timbri, járni og steypu. Hönnun þeirra endurspeglar hugvit og útsjónarsemi bænda fyrr á tímum og staðsetning þeirra ber víða vitni um aðlögun að náttúrulegu umhverfi. Margar eldri réttir eru nú að hverfa eða týnast og er bókin því einnig framlag til varðveislu þessarar arfleifðar.

Anna Fjóla er með meistararéttindi í ljósmyndun og hefur víðtæka reynslu af ljósmyndun og kennslu. Hún starfaði meðal annars við Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar, rak eigin ljósmyndastofu og kenndi við Listaháskóla Íslands og Tækniskólann. Hún hefur áður sent frá sér bækurnar Hestur guðanna árið 2006 og Akureyri og nágrenni í Eyjafirði árið 2010.

Dælarétt í Flóa
Tungnarétt í Biskupstungnum
Lambatungurétt i Skaftárhreppi

Nýjar fréttir