-1 C
Selfoss

Minningarviðburður í tilefni af 90 ára fæðingarafmæli Frosta Fjalar

Vinsælast

Listasafn Árnesinga og Hrunamannahreppur bjóða til sérstaks viðburðar til heiðurs myndlistarmanninum Frosta Fjalar (1936–2026), sem lést í júní síðastliðnum en hefði orðið níræður þann 29. desember á þessu ári. Viðburðurinn fer fram í félagsheimilinu á Flúðum þann 22. nóvember næstkomandi.

Frosti Fjalar, (skírður Jakob Jónsson), var afkastamikill listamaður sem fór eigin leiðir í íslensku myndlistarlífi. Hann lauk prófi í byggingarverkfræði frá KTH í Stokkhólmi árið 1961 og stundaði síðar myndlistarnám í Kaupmannahöfn á árunum 1965–1971. Hann tók virkan þátt í íslensku myndlistarlífi á áttunda og níunda áratugnum og hélt meðal annars sýningar í Bogasal Þjóðminjasafnsins, Ásmundarsal og Stöðlakoti. Eftir síðustu sýningu sína árið 1991 dró hann sig í hlé frá opinberu myndlistarlífi en hélt áfram að skapa í einrúmi og byggði upp umfangsmikið safn listaverka.

Frosti arfleiddi Listasafn Árnesinga að öllum eigum sínum og listaverkum og hefur safnið nú tekið við þessari einstöku gjöf. Með henni hefur ævistarf listamannsins verið falið safninu til varðveislu og miðlunar til komandi kynslóða.

Þótt Frosti hafi fæðst á Bíldudal átti fjölskylda hans djúpar rætur í Hrunamannahreppi. Faðir hans, Jón Jakobsson prestur, fæddist á Galtafelli árið 1903 og föðurafi hans, Jakob Jónsson, fæddist í Bryðjuholti árið 1866 og bjó síðar meðal annars í Miðfelli og á Galtafelli. 

Þessi ættartengsl varpa áhugaverðu ljósi á ákvörðun Frosta að arfleiða Listasafn Árnesinga að eigum sínum og ævistarfi.

Á viðburðinum verður fjallað um líf Frosta, ættartengsl hans við Hrunamannahrepp, myndlistarferil og þá merku arfleifð sem hann lætur eftir sig. Jafnframt verður sett upp sérstök pop-up sýning á úrvali verka hans í félagsheimilinu á Flúðum aðeins í þennan eina dag.

Með viðburðinum vilja Listasafn Árnesinga og Hrunamannahreppur heiðra minningu Frosta Fjalar, kynna verk hans og fagna þeirri einstöku gjöf sem nú hefur verið falin safninu til varðveislu.

Aðgangur ókeypis – öll velkomin.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Listasafns Árnesinga og Hrunamannahrepps.

Nýjar fréttir