9 C
Selfoss

Afmælisveisla í miðbæ Selfoss um helgina

Vinsælast

Miðbær Selfoss heldur upp á fimm ára afmælið sitt dagana 5.–7. nóvember og býður bæjarbúum og gestum að fagna með sér. Hátíðin stendur í þrjá daga og þar er eitthvað fyrir alla aldurshópa.

Hún hefst í kvöld, fimmtudag, með kósýkvöldi þar sem Karlakór Selfoss tekur lagið kl. 19:00. Hringekja verður opin fyrir börnin alla dagana. Verslanir og veitingastaðir bjóða afmælistilboð alla helgina og allir sem versla í miðbænum geta unnið 50.000 kr. gjafabréf frá Icelandair.

Laugardagurinn er stóri dagurinn. Valdi Braga leiðir sögugöngu um miðbæinn kl. 13:00, 14:00 og 15:30 og segir frá húsunum og fólkinu sem tengist þeim. Lagt er af stað frá mathöllinni. Kl. 15:05 sker svo fimm ára Selfyssingur fyrstu sneiðina, jafngamall miðbænum, ad fimm metra langri afmælistertu á Risinu.
Öllum er boðið í kaffi og köku.

Nýjar fréttir