9.7 C
Selfoss

Kæra sveitarstjórnarfólk

Vinsælast

Ég sat nýverið upplýsingafund á Sólheimum í Grímsnesi fyrir aðstandendur íbúa þar.

Þar kom margt gagnlegt fram og langflest uppbyggilegt og ánægjulegt. Eitt var það þó sem greip athygli mína sérstaklega og það er að íbúar Sólheima eru í brasi með akstursþjónustu. Sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur er tæknilega séð sá aðili sem á að sinna þjónustunni, þar sem Sólheimar eru staðsettir í því sveitarfélagi. Hreppurinn hefur, kannski skiljanlega, ekki tök á að sinna því á fullnægjandi hátt. Stjórn og starfsfólk Sólheima hefur, að mér skilst, komið með ýmsar tillögur til úrbóta og meira að segja boðist til að taka yfir þjónustuna.

Mér þætti sómi að því fyrir öll aðildarsveitarfélög Bergrisans, þó sérstaklega þau sem eiga einn eða fleiri íbúa á Sólheimum upprunna í sínu sveitarfélagi, að taka samtal og finna lausn á þessum vanda. Það er ótækt að ekki sé hægt að mæta þessum þörfum þessa hóps og mér í það minnsta finnst ekki endilega eðlilegt að GOGG þurfi ein að sinna því.

Þessi póstur var sendur á oddvita allra sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna ásamt formönnum þeirra nefnda sem fara með málaflokkinn í hverju sveitarfélagi.

Með virðingu og vinsemd,
Steinunn Lilja Svövudóttir,
aðstandandi íbúa á Sólheimum í Grímsnesi

Nýjar fréttir