3.5 C
Selfoss

Sunnlensk störf eru í húfi

Vinsælast

Þegar Fontana á Laugarvatni lokaði tímabundið vegna framkvæmda drógust umsvif líka saman í gistingu, veitingum og verslun í nágrenninu. Þetta dæmi segir meira um hagsmuni sunnlenskra byggða en margar ræður um byggðastefnu. Þegar ferðamönnum fækkar finnast áhrifin allt í kring.

Þessi tengsl gleymast þegar ríkisstjórnin ver áform sín um nýja skatta. Í Sprengisandi á sunnudag var því ítrekað haldið fram að gjaldtakan á Gullna hringnum myndi leggjast á ferðamenn en ekki íbúa Bláskógabyggðar. Það svar veitir litla huggun þeim sem hafa atvinnu sína af viðskiptum við þessa sömu gesti.

Fyrir fjölskyldu sem rekur lítið gistihús skiptir máli að gestir komi líka yfir veturinn, svo hægt sé að standa undir lánum og hafa starfsfólk í vinnu allt árið. Minni viðskipti geta því bitnað beint á tekjum heimamanna, þótt gjaldið sjálft sé innheimt af erlendum gesti. Ríkisstjórnin verður að taka þessi áhrif á sunnlenskt atvinnulíf alvarlega.

Það er okkur Sunnlendingum mikið hagsmunamál að hér sé fjölbreytt atvinnulíf og fólk geti fundið sér framtíð í heimabyggð. Ferðaþjónustan hefur opnað tækifæri sem áður voru ekki fyrir hendi. Hún hefur styrkt rekstrargrundvöll þjónustu sem við sjálf nýtum og gert fleirum kleift að hafa afkomu af eigin framtaki. Þennan árangur ber að verja.

Sérstaka gjaldtakan á Þingvöllum, við Geysi og Gullfoss stefnir í þveröfuga átt. Ríkisstjórnin hyggst afla sex til sjö milljarða króna árlega vegna heimsókna á þessa þrjá staði, sem allir eru í Bláskógabyggð. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa mótmælt því harðlega að eitt landsvæði sé gert að sérstökum gjaldstofni fyrir verkefni um land allt. Ég tek heilshugar undir þá gagnrýni.

Við eigum ekki að sætta okkur við að uppbygging á Suðurlandi verði skattalegt skotmark ríkisstjórnarinnar. Með því að gera heimsóknir hingað dýrari skapa stjórnvöld hættu á að gestir sleppi viðkomu eða dragi úr öðrum kaupum. Áhrifin geta náð langt út fyrir Bláskógabyggð, til fyrirtækja og starfsfólks víða um landshlutann.

Við þetta bætist fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24%. Samkvæmt SASS tengjast baðlónum og tengdum rekstri á Suðurlandi yfir 35 milljarða króna fjárfesting og rúmlega 400 heilsársstörf. Þessi störf skipta fjölskyldurnar sem á þeim byggja öllu máli. Árstíðabundin vinna yfir sumarið kemur ekki í stað traustrar atvinnu allt árið.

Sveitarfélögin hafa líka lagt sitt af mörkum. Þau hafa sinnt skipulagi, byggt upp veitur og tekið á sig skuldbindingar til að greiða fyrir atvinnuuppbyggingu. Þegar ríkið breytir forsendum rekstrarins getur það því einnig grafið undan fjárfestingum sveitarfélaganna. Sunnlenskir skattgreiðendur eiga þar hagsmuna að gæta, óháð því hvort þeir starfa sjálfir í ferðaþjónustu.

Ríkisstjórnin þreytist ekki á því að vísa til innviðaskuldar. Hér þarf sannarlega að bæta vegi, auka öryggi og tryggja vetrarþjónustu sem gerir heilsársrekstur mögulegan. En í frumvarpsdrögunum um náttúru- og innviðagjald er engin eyrnamerking teknanna til þeirra þriggja staða sem gjaldtakan tekur til. Stjórnvöld verða að sýna hvaða framkvæmdir fá fjármagn og hvernig tekjur sem þegar eru innheimtar af greininni nýtast. Almenn fyrirheit duga ekki.

Það dugar ekki að segjast hlusta á áhyggjur heimamanna og halda síðan ótrauð áfram. Samráð þarf að hafa áhrif á endanlega niðurstöðu málsins. Fyrirtæki sem hefur selt þjónustu langt fram í tímann getur ekki breytt samningum sínum jafnóðum og ráðuneyti breytir um stefnu. Það er óábyrgt að ætlast til að fyrirtækin taki skellinn sjálf.

Ég vil að við getum tekið á móti gestum allt árið, varið náttúruna og byggt upp þjónustu sem nýtist líka íbúunum. Til þess þarf raunverulegt samstarf við sunnlensk sveitarfélög og atvinnurekendur. Forgangsraða þarf núverandi tekjum til nauðsynlegra verkefna, einfalda rekstrarumhverfið og tryggja fyrirsjáanleika. Stöðugar skattahækkanir gera þá vinnu erfiðari og geta dregið úr vilja fólks til að leggja í næstu fjárfestingu.

Ég mun beita mér á Alþingi fyrir því að fallið verði frá Bláskógaskattinum og skattahækkuninni á baðlón. Við höfum lagt mikið undir við uppbyggingu á Suðurlandi og eigum rétt á að ríkisstjórnin taki hagsmuni okkar alvarlega. Hún getur byrjað á því að draga þessi áform til baka.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Suðurkjördæmis.

Nýjar fréttir