2.8 C
Selfoss

Loftslagsdagurinn – Mér er sama

Vinsælast

Loftslagsdagurinn á vegum Umhverfis- og orkustofnunar er haldinn 28. október. Mörg okkar munu segja: Hvað með það? Mér er sama. En er okkur virkilega sama um jörðina og hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa á okkur mannfólkið? Það gleymist oft að jörðin þarf ekki á okkur mönnunum að halda, heldur þurfum við á jörðinni að halda til að lifa góðu lífi. Við viljum lifa sem lengst og við góða heilsu. Þess óskum við einnig komandi kynslóðum. Umhverfistengdir sjúkdómar á borð við astma eru þegar orðnir hversdagslegir og fer fjölgandi. Við viljum ferðast og ferðumst gjarnan þangað sem náttúran er enn ósnortin. Þessum stöðum fer sífellt fækkandi, þar sem þeim er oft fórnað fyrir ferðaþjónustu og efnahagslega nýtingu. Skógarnir, sem kallaðir eru „græn lungu“ jarðar, líða. Hafið, sem varmageymir jarðar, líður. Er þetta allt saman þjáning án enda, án vonar?

Við þurfum ekki að bjarga plánetunni okkar, heldur okkur sjálfum! Vissulega eru vandamálin og krísurnar orðnar svo stórar og ógnvekjandi að við viljum helst stinga höfðinu í sandinn. Það er auðveldara að kvarta og kenna stjórnmálamönnum og valdhöfum þessa heims um ófarir okkar en að gera sjálf eitthvað. Líður okkur betur með það? Eru afsakanir okkar ekki flótti frá því að horfast í augu við vandamálin? Hversu lengi getum við litið undan og haldið áfram án þess að samviskan segi til sín? Við vitum að breytinga er þörf á lífsháttum okkar, en samt aðhöfumst við ekkert vegna þæginda, ótta við háð eða hugsunarleysis.

Fæst okkar hafa tækifæri til að áorka stórum hlutum. En lítil skref færa okkur líka fram á við. Samviskusamleg flokkun sorps, að skilja bílinn stundum eftir heima og gæta þess að vélin gangi ekki að óþörfu, eða að kaupa innlendar vörur eru hlutir sem hver og einn getur gert. Og við getum spurt spurninga: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir upp á, hvað gerir sveitarstjórnin varðandi umhverfismál? Viljum við halda áfram, meðvitað eða ómeðvitað, að stuðla að því að eyðileggja lífsumhverfi okkar smátt og smátt? Loftslagsdagurinn er í mínum huga dagur til að íhuga hvernig ég get lagt mitt af mörkum til betra og lífvænlegra umhverfis. Margt smátt gerir eitt stórt.

Brigitte Bjarnason, amma og eldri borgari

Nýjar fréttir