2.8 C
Selfoss

Tíu ára sölukona á Hellu selur armbönd til styrktar mömmu sinni

Vinsælast

Dagmar Daníelsdóttir, tíu ára stúlka á Hellu, hefur vakið athygli fyrir fallegt framtak eftir að móðir hennar greindist nýlega með brjóstakrabbamein. Dagmar ákvað að leggja sitt af mörkum með því að selja Lífið er núna-armbönd á vegum Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess.

Á aðeins nokkrum dögum hefur Dagmar selt ríflega 100 armbönd og þannig lagt sitt af mörkum til að styðja við móður sína í baráttunni fram undan.

„Ég er að selja armböndin af því að mamma mín greindist með krabbamein og ég er að reyna að gera allt til þess að styrkja hana,“ segir Dagmar í tilkynningu frá Kraft.

Kraftur hefur hrósað Dagmar fyrir framtakið og þakkað henni kærlega fyrir stuðninginn. Þá óskar félagið mæðgunum góðs gengis í baráttunni sem fram undan er.

Nýjar fréttir