Margrét Elísa Gunnarsdóttir tók við starfi forstöðumanns þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurlandi í lok september.
Margrét er með BA-gráðu í félagsfræði og meistaragráðu í forystu og stjórnun. Hún hefur um sjö ára reynslu af stjórnunarstörfum og um tíu ára reynslu af fjölbreyttum störfum á sviði velferðarmála. Hún hefur jafnframt víðtæka reynslu af mannauðsmálum, þjónustuþróun og breytingastjórnun. Áður starfaði hún sem forstöðumaður hjá Sveitarfélaginu Árborg, þar sem hún leiddi umfangsmiklar breytingar og þjónustuþróun með áherslu á aukin þjónustugæði, skilvirkt skipulag, faglegt starfsumhverfi og öfluga liðsheild.
„Ég legg mikla áherslu á þjónandi forystu, traust og öfluga liðsheild. Grunngildi Vinnumálastofnunar, fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki, endurspegla vel mínar eigin áherslur á fagleg vinnubrögð, traust og jákvæð samskipti, bæði innan vinnustaðarins og í þjónustu við einstaklinga og atvinnulífið,” segir Margrét í samtali við Dagskána
Í nýju starfi ber Margrét ábyrgð á starfsemi þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurlandi, daglegum rekstri, mannauðsmálum og þróun þjónustu á svæðinu sem er nokkuð víðfeðmt.
„Ég hlakka til að vinna með öflugu starfsfólki að áframhaldandi þróun þjónustunnar og efla samstarf við fyrirtæki, sveitarfélög og aðra hagaðila á Suðurlandi. Ég tel mikilvægt að auka virkni og fjölbreytni í úrræðum, skapa fleiri tækifæri til þátttöku á vinnumarkaði og stuðla að aukinni samfélagslegri ábyrgð.“

