2.3 C
Selfoss

Vésteinn Hafsteinsson þjálfar Hjálmar Vilhelm

Vinsælast

Véstein Hafsteinsson þarf vart að kynna, en hann er margverðlaunaður kastþjálfari og búinn að skapa sér sess sem einn virtasti þjálfari í heiminum í sínu fagi. Margir muna eftir því einstaka afreki þegar Daniel Ståhl og Simon Pettersson tóku gull og silfur á Ólympíuleikunum í Tókýó undir handleiðslu Vésteins áður hafði Vésteinn einnig þjálfað Gerd Kanter til gullverðlauna á Ólympíuleikunum Peking árið 2008.

Hjálmar Vilhelm mun æfa kringlukast undir stjórn Vésteins næsta árið í það minnsta. Hjálmar Vilhelm hefur undanfarin ár lagt stund á tugþraut með góðum árangri og hafa kastgreinar verið í algjörum sérflokki hjá honum í þrautinni. Er hann því að færa sig yfir í kringlukast og er þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að æfa undir stjórn Vésteins.

Þeir Ingvi Karl Jónsson og Rúnar Hjálmarsson munu mynda teymi með Vésteini og stýra æfingum hér heima á Selfossi á gólfinu, Vésteinn verður með í fjarfundarbúnaði og svo mun Hjálmar fara út til æfinga hjá Vésteini í fríum og svo er stefnan sett á að Hjálmar verði mikið úti hjá Vésteini næsta sumar.

Nýjar fréttir