2.3 C
Selfoss

Afsakið hlé slær í gegn á Borg

Vinsælast

Leikfélagið Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi frumsýndi síðastliðinn föstudag, 16. október, leikverkið Afsakið hlé eftir Árna Ibsen. Verkið, sem ber undirtitilinn grafalvarlegur gjaldþrotafarsi, er sýnt í Litla Borgarleikhúsinu á Gömlu Borg í Grímsnesi. Óhætt er að segja að frumsýningarhelgin hafi farið vel af stað: uppselt var á frumsýninguna og nánast fullt hús á laugardagskvöldið.

Leikstjóri er Lilja Nótt Þórarinsdóttir, sem margir þekkja sem einn af höfundum og leikurum þáttanna Boltamömmur sem nú eru sýndir í Sjónvarpi Símans. Það skemmir ekki fyrir að Lilja Nótt er sjálf úr sveitinni.

Verkið fjallar um Ævar Eið, sem er dottinn í það á meðan fyrirtækið hans rennur honum úr greipum. Þótt Árni Ibsen hafi skrifað verkið árið 1989 talar það sterkt inn í samtímann og það samfélagsástand sem nú ríkir.

Sýningin hefur hlotið afar góðar viðtökur og mátti greina mikla ánægju meðal gesta að loknum sýningum síðustu helgi. Verkið er stutt og hnitmiðað, um 50 mínútur að lengd, og leikfélagið leggur áherslu á að leikhúsferðin sé meira en sýningin ein. Húsið opnar klukkan 19:30 og gestir eru hvattir til að mæta tímanlega. Eftir sýningu er salurinn opinn áfram þar sem gestir og leikarar geta setið saman og notið samverunnar. Þá er ekki síður gaman að heimsækja sjálft húsið, Gömlu Borg, sem var byggð árið 1929 og nálgast því tíræðisaldurinn.

Næstu sýningar verða um komandi helgi, föstudaginn 23. og laugardaginn 24. október. Þá er sýnt föstudaginn 30. október og sérstök Halloween-sýning laugardaginn 31. október. Síðustu sýningar verða föstudaginn 13. nóvember og lokasýning laugardaginn 14. nóvember. Sýningar hefjast klukkan 20:00.

Miðaverð er 3.500 kr. Miðasala fer fram á tix.is

Nýjar fréttir