Matgæðingur vikunnar er Skarphéðinn Sveinn Sveinsson.
Takk fyrir áskorunina, í dag ætla ég að gefa ykkur uppskrift að rétti sem ég gæti borðað alla daga í öll mál! Þetta er frábær réttur í kvöldmat, millimál og ég tala ekki einu sinni um hversu þægilegur hann er í veislur og hittinga.
Ef þið takið upp þessa uppskrift er um að gera að elda meira en nóg því hann er ennþá betri kaldur daginn eftir!!
Þetta eru hinar einu sönnu ritzkexkjötbollurnar!
Ritzkex kjötbollur
Innihald:
500 g nautahakk
1 pk ritz-kex (vel mulið)
1 pk púrrulaukssúpa
1 bolli mjólk
Aðferð:
Blandið hráefnunum saman og hrærið í hrærivél. Mótið litlar kúlur, raðið í form og bakið í ofni á 180 C þar til þær eru ljósbrúnar.
Sósan:
1 dl rifsberjahlaup
á móti 1 dl chili-tómatsósu.
Aðferð:
Sósunni hellt yfir bollurnar settar aftur í ofninn. Gott er að hræra í öðru hvoru og hafa í ofninum í u.þ.b. 20 mín.
Verði ykkur að góðu!
Að lokum skora ég á eðalmatgæðinginn, Daníel Arnar Víðisson, minn besta vin sem er ótrúlegur í eldhúsinu! Ég sá hann einu sinni skera rauðlauk bara með því að horfa á hann.

