2.3 C
Selfoss

Hefur þú tök á að starfa á Íslandsmótinu í boccia og fagna 40 ára afmæli Suðra?

Vinsælast

Suðradeild Umf. Selfoss mun halda Íslandsmót í einstaklingskeppni í boccia á Selfossi dagana 30. október -1. nóvember 2026. Þetta verður mjög stórt mót, en 176 keppendur eru skráðir til keppni. Keppt verður í tveimur íþróttahúsum á Selfossi og lokahófið verður á sunnudeginum 1. nóvember á Hótel Selfoss.

Íþróttafélagið Suðri var stofnað 22. febrúar árið 1986 og fagnar því 40 ára starfsafmæli íþróttastarfs fatlaðra á Suðurlandi. Í febrúar 2025 gekk félagið inn í Ungmennafélag Selfoss sem sérdeild.

Boccia hefur alltaf verið stærsta greinin hjá Suðra, en í dag eru æfingar í frjálsum, golfi, lyftingum, taekwondo, fótbolta, boccia og nýjasta greinin er hreyfifjör fyrir börn á grunnskólaaldri.

Nú er staðan þannig að Selfoss-Suðra vantar dómara og ritara eftir hádegi á laugardeginum, 31. október. Leitað er til sjálfboðaliða í öðrum deildum og félögum innan HSK.

Ófeigur Ágúst Leifsson formaður deildarinnar á Selfossi vildi nefna eftirfarandi „Nú vil ég leita til félaga okkar í HSK með óskum um hvort þið gætuð unnið við mótið og sýnt hvað HSK svæðið er sterkur vettvangur. Fyrir svona stórt mót þurfa margar hendur til að allt geti gengið upp. Það okkar einlæga ósk að þið getið lagt okkur lið með einhverju móti. Forsetahjónin verða á staðnum. Sýnum þeim hvað er hægt að gera, þegar allir standa saman og gera svona mót gott og skemmtilegt”

Ófeigur veitir nánari upplýsingar ef þess er óskað í síma 849-3845 og gauksrimi10@simnet.is. Sjálfboðaliðar sem vilja leggja Suðradeildinni lið á Íslandsmótinu í boccia eru beðnir að senda póst á gauksrimi10@simnet.is.

Nýjar fréttir