Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrest fyrir fyrirtæki á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands til og með 31. október næstkomandi. Atvinnulífssýningin verður haldin í Horseday-höllinni í Ölfusi þann 7. nóvember nk.
Uppspretta Suðurlands er vettvangur fyrir fyrirtæki, frumkvöðla og stofnanir á Suðurlandi til að kynna starfsemi sína, auka sýnileika og mynda ný tengsl. Sunnlenskt atvinnulíf einkennist af miklum krafti og fjölbreytileika og spannar allt frá blómlegri matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu til hátækni og grænnar orkuframleiðslu. Hátíðinni er ætlað að brjóta niður múra milli ólíkra atvinnugreina og skapa vettvang fyrir samtal og samvinnu.
Sunnlensk fyrirtæki hvött til þátttöku
Að baki hátíðinni standa Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, ásamt Háskólafélagi Suðurlands og Markaðsstofu Suðurlands. Samstarf þessara þriggja aðila undirstrikar sameiginlegan vilja til að efla nýsköpun og styrkja stoðir atvinnulífs um allt Suðurland.
SASS hvetur stjórnendur og eigendur sunnlenskra fyrirtækja til að nýta sér þennan framlengda frest og tryggja sér pláss á sýningunni.
Skráning á sýninguna og nánari upplýsingar um dagskrá má finna á vef hátíðarinnar: uppspretta.sass.is.
SASS

