6.7 C
Selfoss

Fyrsta árið að baki og veislan rétt að byrja í Laugarási!

Vinsælast

Í gær þann 15. október var eitt ár liðið frá því að Laugarás Lagoon og veitingastaðurinn Ylja opnuðu dyr sínar í hjarta Gullna hringsins. Á fyrsta starfsárinu hafa um 146 þúsund baðgestir heimsótt lónið og hafa Íslendingar tekið staðnum afar vel.

Árið hefur verið viðburðaríkt og fullt af eftirminnilegum augnablikum. Laugarás Lagoon hefur tekið á móti fjölskyldum, vinahópum og fyrirtækjum við fjölbreytt tilefni, hvort sem er til að njóta slökunar í lóninu, góðs matar eða samveru.

Veitingastaðurinn Ylja hefur jafnframt skipað stóran sess í starfseminni frá upphafi. Undir stjórn matreiðslumeistarans Gísla Matts hafa Íslendingar tekið veitingastaðnum opnum örmum og hefur verið sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir leggja leið sína í Laugarás til að njóta góðs matar, hvort sem tilefnið er stórt eða smátt.

Fyrsta árið hefur einnig vakið athygli út fyrir landsteinana. Fjölmargir erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um Laugarás Lagoon, meðal annars TIME, Forbes, Condé Nast Traveler og Travel + Leisure. Þá hefur lónið einnig verið nýtt sem tökustaður fyrir alþjóðlega kvikmyndaframleiðslu að næturlagi, með heimsþekktum leikurum. Á sama tíma hafa eigin kokteilar staðarins, þróaðir af Martin Cabejsek drykkjarstjóra, notið vinsælda meðal gesta.

„Það er eiginlega ótrúlegt að heilt ár sé liðið frá opnun. Þetta hefur verið viðburðaríkt, lærdómsríkt og umfram allt ótrúlega skemmtilegt ár. Við erum afar þakklát fyrir þær frábæru móttökur sem við höfum fengið og sérstaklega hefur verið ánægjulegt að sjá hversu margir koma aftur og aftur. Ég er ótrúlega stolt af starfsfólkinu okkar og öllum þeim sem hafa komið að verkefninu. Við höfum lært heilmikið á þessu fyrsta ári og erum rétt að byrja,“ segir Bryndís Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Laugarás Lagoon.

Þriggja daga afmælisveisla í Laugarási

Afmælishelgin hefst föstudaginn 16. október með hátíðarstemningu í Laugarási. Frá kl. 17:00–18:30 verður gestum boðið upp á fordrykk og smárétti frá Ylju og þar verður Laugarás Highball í aðalhlutverki, einkenniskokteill staðarins sem Martin Cabejsek drykkjarstjóri hefur þróað og notið hefur mikilla vinsælda frá opnun. Frá kl. 18:00–20:00 mun DJ Young Gaudi sjá um að skapa líflega afmælisstemningu við lónið með skemmtilegri blöndu af house, disco og funk. Tónlistin mun óma yfir útisvæðið og setja skemmtilegan svip á kvöldið.

Laugardaginn 17. október kl. 14:00 verður opnuð myndlistarsýning Sigmundar Páls Freysteinssonar, Farvegir, þar sem fjögur ný textílverk verða til sýnis. Sigmundur mun jafnframt segja frá verkum sínum og listrænni nálgun. Síðar sama dag, frá kl. 17:00–18:30, verður lifandi djass á Ylju með Hröðmari Sigurðssyni og Birgi Steini Theodorssyni.

Bæði laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. október verður boðið upp á sérstaka morgunupplifun, Skynjaðu Laugarás, þar sem gestir njóta leiðsagðrar saunagusu með Þóru Hrund frá Munum, slökunar í lóninu og brönsplatta á Ylju að hætti Gísla Matt. Drykkir, léttar veitingar og gjafapoki eru innifalin. Viðburðurinn hefst kl. 9:15 og lýkur um kl. 13:00. Verð er 19.900 kr. á mann og nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram.

Alla afmælishelgina verður jafnframt boðið upp á afmælisköku og fordrykk með brönsinum. Gestir geta einnig nýtt sér 20% afmæliskjör af Rjóður, eigin húð-og hárvörulínu Laugarás Lagoon, sem þróuð var í samstarfi við íslenska vörumerkið Nordic Angan. Vörulínan er innblásin af náttúrunni í Laugarási og er hluti af upplifun gesta, allt frá sturtuaðstöðunni til þess að taka smávegis af vellíðaninni með sér heim.

Frekari upplýsingar má finna hér: laugaraslagoon.is

Gísli Matt býður til jóla á Ylju

Á Ylju hefur matreiðslumeistarinn Gísli Matt lagt áherslu á íslenskt hráefni, árstíðabundna matargerð og sterka tengingu við nærumhverfið. Veitingastaðurinn hefur orðið vinsæll áfangastaður fyrir fjölbreytt tilefni og fram undan er spennandi jólatímabil.

Jólamatseðill Ylju vakti ánægju meðal gesta í fyrra, ekki síst fyrir óvænta nálgun á kunnugleg íslensk jólabrögð. Nú snýr hann aftur í nýjum búningi þann 19. nóvember, þar sem hefðir, íslenskt hráefni og sköpunargleði Gísla fá að njóta sín.

„Jólin eru skemmtilegur tími í eldhúsinu því þau gefa okkur tækifæri til að vinna með bragð og hefðir sem flestir Íslendingar þekkja, en nálgast þær á nýjan hátt. Á Ylju leggjum við mikla áherslu á hráefnið og tenginguna við nærumhverfið. Í jólamatseðlinum viljum við sameina kunnuglega hátíðarstemningu, góð íslensk hráefni og svolítið óvænta bragðtóna. Umfram allt viljum við að fólk njóti þess að setjast saman til borðs og eiga góða stund,“ segir Gísli Matt, matreiðslumeistari Ylju.

Frá fimmtudegi til sunnudags verður boðið upp á fimm rétta jólamatseðil þar sem íslenskar matarhefðir mæta nútímalegri matargerð. Á matseðlinum má meðal annars finna tvíreykt lambakjöt með laufabrauði, íslenska hörpuskel, grafinn lax og val um léttreyktar svínakinnar eða bleikju í aðalrétt. Máltíðinni lýkur á hátíðlegum eftirrétti þar sem klassískur ris à la mande fær nýtt yfirbragð.

Verð fyrir fimm rétta jólamatseðil er 14.900 kr. á mann.

Yfir daginn, frá kl. 11:30–16:30, verður einnig boðið upp á sérstakan jólabröns þar sem bragðtónar jólamatseðilsins koma saman á einum bakka. Verð er 5.900 kr. á mann. Einnig verður í boði sérstakur síldardiskur með rúgbrauði bökuðu við jarðhita.  Jólaseðilinn má sjá hér laugaraslagoon.is

Þegar er hafin móttaka borðapantana fyrir jólatímabilið og geta hópar og fyrirtæki jafnframt sameinað heimsókn í Laugarás Lagoon og hátíðlega máltíð á Ylju.

Góðar stundir eiga að endurtaka sig! Ný árskort í Laugarás Lagoon

Í tilefni af eins árs afmælinu kynnir Laugarás Lagoon í fyrsta sinn árskort fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Kortin veita ótakmarkaðan aðgang að lóninu í heilt ár og verða í boði á sérstökum kynningarkjörum fram til áramóta.

Með árskortunum vill Laugarás Lagoon gera gestum enn auðveldara að njóta staðarins reglulega, hvort sem það er stutt slökun eftir annasaman dag, gæðastund með fjölskyldunni eða heimsókn með vinum.

„Við finnum að sífellt fleiri vilja gera heimsókn í Laugarás að hluta af sinni rútínu. Með árskortunum viljum við gera fólki enn auðveldara að gefa sér tíma til að njóta, slaka á og eiga góða stund saman, aftur og aftur,“ segir Bryndís Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Laugarás Lagoon.

Áður hefur Birkitían, tíu heimsókna kort Laugarás Lagoon, notið vinsælda. Kostur hennar er sveigjanleikinn, því korthafi getur nýtt heimsóknirnar sjálfur eða deilt kortinu með vinum og vandamönnum. Nýju árskortin veita hins vegar ótakmarkaðar heimsóknir í heilt ár, ýmist fyrir einstaklinga eða fjölskyldur. Með fjölskylduárskorti geta korthafar jafnframt tekið börn sín á aldrinum 5–15 ára með sér í lónið án aukagjalds.

Árskort einstaklinga: 69.000 kr.
Árskort fjölskyldna: 89.000 kr.

Nýjar fréttir