6.7 C
Selfoss

Ritsmiðja hjá Bókabæunum austanfjalls

Vinsælast

Bókabæirnir austanfjalls bjóða til fjölskylduritsmiðju sunnudaginn 18. október þar sem Þuríður formaður verður í aðalhlutverki.

Þuríður formaður er ein eftirminnilegasta kona Íslandssögunnar. Þekkt fyrir kjark, sjálfstæði og dug í sjómennsku á tímum þegar fáar konur gegndu slíkum hlutverkum. Í ritsmiðjunni gefst fjölskyldum tækifæri til að kynnast þessari merku söguhetju og leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín í skapandi skrifum.

Þátttakendur fá að spreyta sig á ritun, skapa eigin sögur og kanna hvernig hægt er að vinna með sögulegar persónur í gegnum bókmenntir. Markmiðið er að efla sköpunargleði, frásagnargleði og áhuga á bókmenntum hjá fólki á öllum aldri. Fjölskylduritsmiðjan er hluti af starfi Bókabæjanna austanfjalls við að efla bókmenntalíf á Suðurlandi og skapa skemmtilegan vettvang þar sem kynslóðir geta komið saman, lesið, skrifaðog skapað.

Hvenær: Sunnudaginn 18. október 2026
Hvar: Brimrót, Hafnargötu 1, efri hæð, Stokkseyri
Tími: Kl. 14

Hægt er að skrá sig með því að senda póst á bokaustanfjalls@gmail.com.

Fyrri grein
Næsta grein

Nýjar fréttir