12 C
Selfoss

Íþróttavika Evrópu hefst á miðvikudaginn

Vinsælast

Íþróttavika Evrópu fer fram dagana 23.–30. september og verður víða í sveitarfélögum á Suðurlandi boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem íbúar á öllum aldri geta tekið þátt í hreyfingu og íþróttum.

Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi.

Boðið verður upp á fjölbreytta viðburði, allt frá hefðbundnum íþróttum og æfingum yfir í göngur, leikfimi og aðra hreyfingu.

Nánari upplýsingar um dagskrá má sjá á Íþróttavika Evrópu / BeActive | isi.is

Nýjar fréttir