Hvers vegna hjólainnviðir eiga að vera lykilþáttur í endurskoðun aðalskipulags Árborgar
Árborg hefur sérstöðu meðal íslenskra sveitarfélaga. Á marflötum Flóanum liggja Selfoss, Eyrabakki, og Stokkseyri þar sem fáar náttúrulegar hindranir takmarka möguleika á vistvænum samgöngum. Það sem víða erlendis og annars staðar á Íslandi krefst kostnaðarsamra mannvirkja er hér til staðar fyrirfram; landslag sem hentar einstaklega vel til hjólreiða og annarra virkra ferðamáta. Þrátt fyrir þessa sérstöðu Árborgar er einkabíllinn ráðandi samgöngumáti innan sveitarfélagsins. Daglegur akstur stuttra vegalengda, skólaakstur og skutl barna til og frá skóla, íþróttum og tómstundum hafa smám saman orðið að sjálfsögðum hluta daglegs lífs. Afleiðingarnar eru aukin umferð, minna umferðaröryggi, meiri losun gróðurhúsalofttegunda og minni hreyfing íbúa.
Árborg býr nú þegar yfir ágætu stígakerfi, þá sérstaklega í nýrri íbúðahverfum á Selfossi. Ekki má gleyma uppbyggingu göngu- og hjólastígs á milli Selfoss og Eyrarbakka sem er langt komin, og stígsins á milli Eyrarbakka og Stokkseyrar sem hefur skapað verðmæta tengingu til útivistar og daglegrar hreyfingar. Það er mikilvægt að halda þessari vegferð áfram. En áskorunin felst ekki fyrst og fremst í skorti á blönduðum stígum heldur í skorti á samfelldum, öruggum og skilvirkum hjólasamgönguleiðum við helstu umferðaræðar byggðarinnar. Núverandi kerfi þjónar að einhverju leyti útivist og upplifun, en síður daglegum samgönguþörfum íbúa.
Í gildandi aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 er lögð áhersla á vistvænar samgöngur, virka ferðamáta og að auka hlutdeild hjólandi umferðar. Sveitarfélagið hefur því nú þegar markað sér stefnu sem er jákvætt, en árangurinn hefur ekki verið nægur. Nú er hins vegar kominn tími til að gera þá stefnu sýnilegri í forgangsröðun fjárfestinga og uppbyggingu innviða fyrir hjólasamgöngur. Ef við viljum að fleiri velji hjólið þá þarf að líta á hjólainnviði sem hluta af samgöngukerfinu okkar.
Við endurskoðun aðalskipulags skapast einstakt tækifæri til að endurhugsa hvernig við viljum að samfélagið þróist næstu áratugi. Til þess þarf langtímahugsun, hugrekki og skýra framtíðarsýn um hvers konar samfélag við viljum byggja upp. Fjárfesting í hjólainnviðum er fjárfesting sem skilar sér á mörgum sviðum samtímis. Öruggt og vel tengt hjólastígakerfi eykur ferðafrelsi íbúa, styrkir sjálfstæði barna og ungmenna, bætir lýðheilsu og dregur úr þörfinni fyrir stuttar bílferðir innan sveitarfélagsins. Með markvissri uppbyggingu hjólainnviða má einnig styrkja tengsl alls byggðarlagsins enn frekar og skapa raunhæfan valkost við bílinn fyrir daglegar ferðir íbúa.
Loftslagsábyrgð er ekki eingöngu verkefni ríkisins heldur einnig sveitarfélaga. Hvernig við skipuleggjum byggð og samgöngur hefur bein áhrif á loftslagsfótspor sveitarfélagsins. Með uppbyggingu hjólainnviða getur Árborg dregið úr bílaháðri ferðavenju, bætt lýðheilsu og stutt við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbær samfélög og aðgerðir í loftslagsmálum. Fjárfesting í hjólainnviðum er því fjárfesting í framtíð sveitarfélagsins og hvernig samfélag við viljum byggja upp. Samkvæmt mannfjöldaspám sveitarfélagsins er gert ráð fyrir áframhaldandi öflugum vexti á næstu árum. Sú þróun mun óhjákvæmilega leiða til meiri umferðar ef ekkert breytist. Spurningin er því ekki hvort umferð muni aukast, heldur hvort við ætlum að bjóða upp á raunhæfa valkosti við einkabílinn áður en sú aukning verður að veruleika.
Selfoss hefur verið líkt við „litlu Köben“, þó mest í tengingu við nýja miðbæinn. Þótt samanburðurinn sé ef til vill langsóttur leynist þar ákveðinn sannleikur. Kaupmannahöfn varð ekki hjólaborg af tilviljun heldur vegna áratuga markvissrar uppbyggingar innviða þar sem hjólið var viðurkennt sem samgöngumáti. Árborg býr yfir mörgum af sömu grunnforsendum; flötu landslagi, stuttum vegalengdum og góðum tengingum milli byggðarkjarna. Munurinn liggur fyrst og fremst í forgangsröðuninni.
Árborg hefur allar forsendur til að verða leiðandi sveitarfélag í virkum samgöngum á Íslandi. Aðalskipulagið sem nú er í endurskoðun er tækifæri til að marka þá stefnu skýrar. Framtíðin mun ekki ráðast af landslaginu, heldur ákvörðunum okkar.
Rebekka Guðmundsdóttir, borgarhönnuður FILA



