8.6 C
Selfoss

Viltu slást í hópinn?

Vinsælast

Hópur glaðværra kvenna sem eru í POWERtalk deildinni Jóru býður til kynningarfundar mánudagskvöldið 21. September kl 19: í  Selinu, Engjavegi 48 á Selfossi.  Kræsingar í fundahléi.

POWERtalk  (áður ITC) byggist á jafningjafræðslu við að koma fram á fundum, halda ræður, skipuleggja fundi og stjórna þeim. Lögð er áhersla á jákvætt og uppbyggilegt starf þar sem félagar hvetja og styðja hvern annan. Eftir því sem færni og kjarkur vex verða verkefnin meira krefjandi. Allskonar leikir eru notaðir m.a. til þess að æfa stuttar óundirbúnar ræður og þá fær hugmyndaflugið að leika lausum hala og hláturinn ómar.  Svo eru ýmsar gerðir af undirbúnum ræðum um nánast allt milli himins og jarðar, (nema flokkspólitík og trúmál). Félagar koma víða að og úr ólíkum starfsstéttum og því eru ræðurnar ólíkar og mjög fróðlegar.
Fundir eru tvisvar í mánuði, sept – maí og eru gestir ætíð velkomnir. Fundir eru auglýstir á facebook síðunni: POWERtalk deildin Jóra, Selfossi.

Nýjar fréttir