6.7 C
Selfoss

ÍSTAK og First Water semja um uppbyggingu í Þorlákshöfn

Vinsælast

First Water og Ístak semja um framkvæmdir við lok uppbyggingar á fyrsta áfanga landeldisstöðvarinnar í Þorlákshöfn

First Water og verktakafyrirtækið Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar framkvæmdir á athafnasvæði First Water í Þorlákshöfn. Með framkvæmdunum verður fyrsta áfanga landeldisverkefnis félagsins lokið og árleg framleiðslugeta tvöfölduð, úr 5.000 í 10.000 tonn af slægðum laxi.

Verkefnið felur í sér uppbyggingu kerja- og stjórnbyggingar sem mun hýsa átta eldisker, hvert um 5.500 rúmmetrar að stærð, ásamt tilheyrandi tæknibúnaði. Ístak mun annast uppsteypu, reisa stálvirki og sjá um klæðningu mannvirkisins.

Framkvæmdir hefjast á næstunni og er gert ráð fyrir að þær taki 16–18 mánuði. Áætlað er að þeim ljúki á fyrsta ársfjórðungi 2028.

Samningurinn við Ístak er stór og mikilvægur áfangi í uppbyggingu First Water. Með framkvæmdunum ljúkum við fyrsta áfanga verkefnisins og tvöföldum núverandi framleiðslugetu. Það er ánægjulegt að fá öflugt íslenskt verktakafyrirtæki með mikla reynslu af flóknum framkvæmdum til samstarfs við okkur,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri First Water.

Uppbygging First Water er metnaðarfullt og tæknilega krefjandi verkefni sem fellur vel að reynslu og þekkingu Ístak, segir Karl Andreassen, forstjóri Ístak. Við erum stolt af því að taka þátt í þessum mikilvæga áfanga og hlökkum til góðs samstarfs við First Water við framkvæmdina.“

Um er að ræða fyrsta áfanga af sex í landeldisstöð First Water í Þorlákshöfn. Langtímamarkmið félagsins er að framleiða allt að 60.000 tonn af slægðum laxi á ári þegar uppbyggingu verður að fullu lokið.

First Water lauk við uppbyggingu átta 25 metra yfirbyggðra landeldistanka í fyrra og uppskar í fyrsta skipti 5 kg slægðan hágæða lax í september 2025. Í janúar á þessu ári hóf First Water reglubundna uppskeru á laxi með 95% yfirburðarhlutfalli (e. superior ratio). Afurðir félagsins eru seldar til viðskiptavina í Evrópu og Bandaríkjunum.

Nýjar fréttir