12.7 C
Selfoss

Norconsult semur við Eyjagöng

Vinsælast

Eyjagöng ehf. hafa gengið frá samningi við norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult um að vinna heildstætt kostnaðar- og fýsileikamat á gerð neðansjávarganga milli lands og Eyja. Verkefnið er mikilvægur áfangi í að kortleggja tæknilegar forsendur samgöngubótar sem getur tryggt heilsárs vegtengingu meginlandsins við Vestmannaeyjar.

Norconsult býr yfir víðtækri reynslu af hönnun og mati á flóknum neðansjávargöngum meðal annars í Noregi og Færeyjum og á alþjóðavísu. Norconsult mun nýta nýjustu gögn og alþjóðlega sérþekkingu til að meta raunhæfni verkefnisins út frá þeim jarðfræðigögnum sem Eyjagöng hefur aflað í sumar og helstu staðla um öryggiskröfur í jarðgöngum til að finna út áætlaðan framkvæmdakostnað.

Samhliða þessu hafa innlendir ráðgjafar félagsins, verkfræðistofurnar Efla og Völuberg, haft yfirumsjón og eftirlit með rannsóknarborunum á svæðinu. Sérfræðingar þeirra vinna nú að samantekt á jarðfræðilegum forsendum og munu jafnframt skila ítarlegri kostnaðar- og fýsileikagreiningu á framkvæmd jarðganganna, eins og áður hefur komið fram.

Markmið samstarfsins er að nýta og auka þekkingu einnar af færstu verkfræðistofum heims á sviði jarðgangagerðar og að þétta matið á þeirri greiningu sem Efla og Völuberg eru nú þegar að vinna með Eyjagöngum. Þannig verða samhliða unnin tvö óháð kostnaðarmöt fyrir verkefnið.

Félagið áætlar að kynna niðurstöður fýsileikamatsins og annara greininga í lok ársins.

Rannsóknarborunum í Landeyjasandi lýkur í lok þessa mánaðar, í heildina hafa verið boraðir 225,5 metrar af þeim 300 metrum sem fyrirhugaðir eru. Fyrr í sumar var unnin greining á hafsbotninum í Eyjasundi ásamt því að félagið framkvæmdi kjarnaborun í Vestmannaeyjum.

Nýjar fréttir