Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni verður landsmönnum boðið til afmælisfagnaðar í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst frá kl. 14–16.
Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og hefur því starfað í íslensku samfélagi í 140 ár. Þá eru einnig liðin 70 ár frá stofnun TM.
Boðið verður upp á léttar veitingar og hátíðarstemningu í 30 útibúum Landsbankans víðs vegar um land. Viðskiptavinir og aðrir gestir eru hvattir til að líta við og taka þátt í fagnaðinum.
Útibúin á Breiðdalsvík, Djúpavogi, Kópaskeri og Skagaströnd eru lokuð á fimmtudögum og verður því ekki haldið upp á afmælin þar að þessu sinni.




