Rafleiðni í Múlakvísl hefur hækkað jafnt og þétt undanfarna sólarhringa og mælist nú óvenju há miðað við árstíma. Að sögn Veðurstofu Íslands benda mælingarnar til þess að lítið jökulhlaup sé hafið í ánni.
Rafleiðnin mælist um 286 míkrósíemens á sentímetra (µS/cm). Há leiðnigildi gefa til kynna aukið magn jarðhitavatns í ám. Vatnshæð Múlakvíslar hefur þó ekki hækkað samhliða aukinni leiðni enn sem komið er, en mögulegt er að hún hækki á næstu dögum.
Jökulhlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl. Að þessu sinni fylgir hlaupinu þó mikil gasmengun. Gasmælir Veðurstofunnar við Láguhvola, um tveimur kílómetrum frá jökuljaðri Kötlujökuls, mældi brennisteinsvetni yfir heilsuverndarmörkum í nótt.
Fólk er því hvatt til að staldra ekki við nálægt ánni eða upptökum hennar við jökuljaðarinn. Hægviðri undanfarinna daga eykur hættuna á að gas safnist fyrir í lægðum. Finni fólk fyrir einkennum á borð við sviða í nefi eða augum á það að yfirgefa svæðið tafarlaust.
Sólarhringsvakt Veðurstofu Íslands fylgist áfram með mælingum á svæðinu og mun senda frá sér nýjar upplýsingar ef breytingar verða.



