Blómstrandi dagar fóru fram í Hveragerði í 31. sinn um síðustu helgi. Mikið líf og fjör var í bænum frá fimmtudegi til sunnudags enda fagnar Hveragerðisbær 80 ára afmæli í ár.
Fjölbreytt og þétt dagskrá var í boði fyrir gesti á öllum aldri og blíðskaparveður var alla helgina. Þar má meðal annars nefna tívolí fyrir börnin, fjölskylduskemmtun í lystigarðinum, fornbílasýningu, markaði, tónleika og sitthvað fleira. Veittar voru viðurkenningar til eigenda fegurstu garða Hveragerðis 2026.
Laugardagurinn stendur yfirleitt mest upp úr hjá flestum hátíðargestum en stóri ísdagurinn í boði Kjörís vekur alltaf sérstaka athygli. Í ár gerði fjöldinn allur af fólki sér ferð til Hveragerðis til að smakka á hinum ýmsu ístegundum. Meðal furðuísanna í ár má meðal annars nefna matcha-latte-ís, dökkan bjór-ís, hot honey-ís með pekanhnetum og hinn allra furðulegasti, kæfuís.
Tónlistaratriði ísdagsins voru ekki af verri kantinum en söngkonan Bríet og sunnlenska hljómsveitin Svitabandið sáu um að skemmta gestum. Mikael Kaaber sá um að kynna tónlistaratriðin upp á svið. Íþróttaálfurinn lét sjá sig, börnunum til mikillar skemmtunar.
Um kvöldið var árlega kvöldskemmtunin í Lystigarðinum þar sem fjölskyldur og vinir komu saman og fylgdust með tónlistaratriðunum. Í ár voru það Emmsjé Gauti, Jónas Sig, Unnur Borg og Stefán Hilmars sem stigu á svið. Jónsi mætti að lokum með gítarinn og stýrði brekkusöng áður en flugeldasýningin í boði Hjálparsveitar skáta í Hveragerði kláraði kvöldskemmtunina. Þá héldu gestir niður í íþróttahús þar sem hljómsveitin Bandmenn hélt uppi góðri stemmningu á Blómaballi Hamars.








