Í gær, fyrir leik Selfoss og Víkings í Ragnarsmóti karla var Árni Þór Grétarsson sæmdur gullmerki Umf. Selfoss af Sverri Einarssyni varaformanni félagsins.
Einnig var Árni Þór sæmdur gullmerki HSÍ af formanni HSÍ, Jóni Halldórssyni.
Fjöldi fólks lagði leið sína í SET Höllina en eins og allir vita hefur Árni Þór verið einn öflugasti sjálfboðaliði handknattleiksdeildarinnar síðustu ár og er hann vel að þessum viðurkenningum kominn.
UMFS



