14.6 C
Selfoss

Tombólan á Borg fagnar 100 árum á Grímsævintýrum

Vinsælast

Laugardaginn 22. ágúst verður mikið um dýrðir á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi þegar sveitahátíðin Grímsævintýrin fer fram. Í ár verður sérstaklega hátíðlegt um að litast því Tombólan á Borg fagnar 100 ára afmæli, en þessi einstaka sveitahefð á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1926.

Tombólan var fyrst haldin af konum í Kvenfélagi Grímsneshrepps árið 1926 og hefur í heila öld verið hluti af mannlífi og sumargleði í sveitinni. Kynslóð eftir kynslóð hefur tekið þátt og tombólan skipað sérstakan sess hjá heimafólki, brottfluttum sveitungum, sumarhúsagestum og öðrum gestum svæðisins.

Í tilefni aldarafmælisins ætla kvenfélagskonur að gera sérstaklega vel við gesti og stefna á að safna 3.000 vinningum. Eins og hefðin býður eru engin null, hver einasti miði vinnur, og rennur allur ágóði tombólunnar óskertur til góðra málefna.

Grímsnes- og Grafningshreppur tekur þátt í afmælisfögnuðinum og býður til ókeypis tónleika í Félagsheimilinu Borg um kvöldið. Þar stíga á svið Magnús Kjartansson, Sigga Beinteins og Grétar Örvars, ásamt hljómsveit.

Fjör fyrir alla fjölskylduna

Grímsævintýrin bjóða upp á fjölbreytta dagskrá allan daginn og ættu allir aldurshópar að finna eitthvað við sitt hæfi. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

  • Tombólan 100 ára: Þúsundir fjölbreyttra vinninga – engin núll og allur ágóði rennur til góðra málefna.
  • Leikir og afþreying: Leikfélagið Borg bregður á leik og Ungmennafélagið Hvöt stendur fyrir krakkahlaupi, 5 km hlaupi og Grímsleikunum.
  • Tæki og tól: Hjálparsveitin Tintron sýnir búnað sinn, Brunavarnir Árnessýslu verða á svæðinu og gestir geta einnig skoðað torfærubíla.
  • Fyrir yngstu gestina: Ofurhetjurnar Sólon og Dimma mæta á svæðið auk þess sem boðið verður upp á klifurvegg og andlitsmálun.
  • Markaður og Blúndukaffi: Markaður verður í Félagsheimilinu, Skógræktarfélagið verður með plöntuskiptimarkað og kvenfélagskonur bjóða gestum í notalegt Blúndukaffi þar sem seldar verða vöfflur og kaffi.
  • Afmælistónleikar: Um kvöldið býður Grímsnes- og Grafningshreppur upp á ókeypis tónleika með Magnúsi Kjartanssyni, Siggu Beinteins og Grétari Örvars ásamt hljómsveit.

„Tombólan á Borg er miklu meira en happdrætti – hún er hluti af sögu okkar og þeirri sterku samfélagshefð sem hefur lifað hér í heila öld. Það er einstakt að fá að fagna 100 ára afmæli hennar á Grímsævintýrunum og sjá kynslóðir koma saman, rifja upp gamlar minningar og skapa nýjar. Við vonum að sem flestir komi á Borg og fagni þessum merku tímamótum með okkur.“

Íbúar, brottfluttir Grímsnesingar, sumarhúsagestir, nágrannar og aðrir gestir eru hvattir til að fjölmenna á Borg, njóta dagsins með fjölskyldu og vinum og taka þátt í að fagna 100 ára sögu Tombólunnar á Borg – og styrkja gott málefni í leiðinni.

Sjá Facebook síðu:
Kvenfélag Grímsneshrepps

%22%7D“ pretext=“Sjá viðburð:“ title=“Viðburður Grímsævintýra“ target=“_self“ rel=“nofollow“]

Nýjar fréttir