15.6 C
Selfoss

Metfjöldi á Brekkusöng í Miðbæ Selfoss

Vinsælast

Í gærkvöldi fylltist miðbær Selfoss af lífi þegar um 1.000 gestir komu saman til að fylgjast með beinni útsendingu frá Brekkusöngnum í Vestmannaeyjum. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í viðburðinum, sem var haldinn í fimmta sinn, en miðbær Selfoss fagnar einmitt fimm ára afmæli á þessu ári.

Kvöldið fór afar vel fram og ríkti einstök stemning frá upphafi til enda. Gestir á öllum aldri nutu tónlistarinnar, veitinganna og samverunnar í miðbænum, sem hefur á fáum árum fest sig í sessi sem einn vinsælasti samkomustaður Sunnlendinga.

„Það er virkilega gaman að sjá hvernig þessi viðburður hefur vaxið ár frá ári. Allt gekk mjög vel og við erum afar þakklát öllum þeim sem komu og tóku þátt í þessari frábæru stemningu,“ segir Davíð Lúther, markaðsstjóri miðbæjar Selfoss.

Að sögn Davíðs tók hann eftir því að fólk mætti mun fyrr en undanfarin ár.

„Við teljum líklegt að það megi rekja til þess hversu einstaklega gott veður var yfir daginn. Klukkan átta um kvöldið mældist hitinn enn um 16 gráður, sem er auðvitað frábært fyrir íslenskt sumarkvöld og skapaði fullkomnar aðstæður til að njóta kvöldsins utandyra.“

Miðbær Selfoss vill færa öllum gestum, starfsfólki, listafólki og samstarfsaðilum kærar þakkir fyrir kvöldið og hlakkar nú þegar til næsta árs. Með metaðsókn á fimm ára afmælisári miðbæjarins er ljóst að Brekkusöngurinn hefur fest sig í sessi sem einn vinsælustu sumar viðburðum á Suðurlandi.

Nýjar fréttir