15.6 C
Selfoss

Alltaf fundist skemmtilegast að fá fólk til að hlæja

Vinsælast

Plakat uppistandsins Byggt á sönnum sögum. Mynd: Aðsend.

Selfyssingurinn Theodóra Guðnadóttir snýr aftur á heimaslóðir þegar hún stígur á svið á Sviðinu á Selfossi föstudaginn 7. ágúst með uppistandið Byggt á sönnum sögum. Sýningin var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í vor og nú hefur Theodóra ákveðið að færa hana fyrir sunnlenska áhorfendur.

Theodóra, sem er 28 ára og fædd og uppalin á Selfossi, býr nú í Reykjavík þar sem hún starfar sem vaktstjóri í miðasölu Borgarleikhússins. Hún segir vinnuna þar hafa verið ómetanlega reynslu og hún sé nú að hefja sitt sjöunda leikár hjá leikhúsinu.

Sannar sögur verða að uppistandi

Uppistandið Byggt á sönnum sögum er, eins og nafnið gefur til kynna, byggt á sönnum sögum. Handritið er samið af Theodóru sjálfri og hefur handritsgerðin tekið rúmt ár.
„Ég er að segja sögur úr mínu lífi sem eru svona frekar fyndnar og skoplegar. Ég geri mikið grín að sjálfri mér og samfélaginu svolítið,“ segir Theodóra í samtali við Dagskrána.

Sýningin er sjálfstætt framhald „Tilvistarkreppu“ sem Theodóra setti upp 2024 í Borgarleikhúsinu.

Í sýningunni veltir hún fyrir sér lífinu á þessum skrýtna aldri, 28 ára. Ekki gömul en ekki ung lengur, þetta er millibilsástand; þú átt að vera með plan en ert í raun bara að reyna að halda dampi.

Að skrifa uppistand er þó síður en svo einfalt verkefni. Hugmyndirnar geta komið hvar og hvenær sem er og því reynir hún að vera ávallt tilbúin.

„Ég er eiginlega alltaf með Notes-appið opið í símanum og er líka oft með litla bók þar sem ég skrifa niður punkta. Oft lendi ég í einhverju fyndnu eða sé skondna aðstöðu og þá reyni ég að skrifa það strax niður. Þaðan næ ég að flétta öllu saman í handrit.“

Theodóra að sýna Byggt á sönnum sögum í Borgarleikhúsinu. Mynd: Aðsend.

Tilvistarkreppa

Sýningin var sýnd í Borgarleikhúsinu í vor og segir Theodóra að viðtökurnar hafi verið frábærar. Hún hafi jafnframt lengi fengið endalausar spurningar frá Selfyssingum um hvenær hún hygðist koma með sýninguna heim.

„Ég er frá Selfossi og þekki marga þar, þannig að ég hef endalaust verið spurð hvenær ég ætli að koma og sýna þetta á Selfossi. Þannig að hérna ég er bara að svara kallinu.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún stígur ein á svið með eigið efni. Árið 2024 setti hún einnig upp eigið uppistand, „Tilvistarkreppu“, í Borgarleikhúsinu sem fékk góðar viðtökur. Að þessu sinni naut hún þó aðstoðar Benjamíns, sviðshöfundar og samstarfsmanns í Borgarleikhúsinu, sem hjálpaði henni með leikstjórn og utanumhald sýningarinnar.

Theodóra og systir hennar, Elísabet Auður. Mynd: Aðsend.

Brotinn fótur stoppar Theodóru ekki

Þótt handritið á uppistandinu sé hið sama frá sýningunni í vor hefur bæst við auka áskorun hjá Theodóru.
„Ég lenti í því leiðinlega atviki hérna í byrjun júní að fótbrotna. Ég er búin að vera fótbrotin í allt sumar. Alveg frábært sko. Mér fannst það smá svona auka áskorun. En ég losna úr gifsinu rétt fyrir Versló. Ég mun klárlega koma því einhvern veginn í handritið,“ segir hún og hlær.

Þegar kemur að því að stíga á svið viðurkennir hún að fiðringurinn geri vart við sig.

„Ég er ekkert stressuð allan aðdragandann og síðan þegar eru svona tíu mínútur í að ég eigi að fara á svið þá kemur stressið. Svona gott stress. Síðan um leið og ég kem upp á svið þá bara renna allar áhyggjur af mér.

Sýningin Byggt á sönnum sögum verður sýnd á Sviðinu föstudaginn 7. ágúst klukkan 20:00 og er fullkomin upphitun fyrir bæjarhátíðina Sumar á Selfossi. Theodóra segir kvöldið henta vel fyrir þá sem vilja byrja á góðum hlátri áður en haldið er áfram inn í hátíðarstemninguna í hvítu tjöldunum.

Miðasala fer fram á Tix.is og í gegnum heimasíðu Sviðsins.

Nýjar fréttir