15.6 C
Selfoss

Einföld og þæginleg taco sem hitta alltaf í mark

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Vignir Þór Sigurjónsson.

Ég vil þakka Rúnari Helga a.k.a Mixaranum fyrir þessa skemmtilegu áskorun.

Þetta er einfaldur og fjölskylduvænn taco-réttur sem fær smá auka lyftingu með því að baka taco-skeljarnar með hakki og osti í ofni. Ferska salsað gefur síðan réttinum skemmtilegt mótvægi með fersku og léttu bragði.

Hráefni

Taco

  • 1 pakki af hörðum taco-skeljum
  • 1 pakki af nautahakki
  • 1 poki taco-krydd
  • Rifinn ostur eftir smekk

Ferskt salsa

  • 3–4 tómatar
  • ½ rauðlaukur
  • 1 avókadó
  • 1 lime
  • Salt og svartur pipar eftir smekk

Meðlæti

  • Salsa-sósa
  • Sýrður rjómi

Aðferð

Byrjið á að steikja hakkið á pönnu og kryddið með taco-kryddi. Steikið þar til hakkið er vel brúnað og tilbúið.

Raðið taco-skeljunum þétt saman í eldfast mót svo þær standi vel. Setjið steikta hakkið ofan í hverja skel og stráið síðan góðu lagi af rifnum osti yfir.

Setjið mótið inn í ofn og bakið þar til osturinn er bráðinn og orðinn fallega gullinn.

Ferskt salsa

Skerið tómatana, rauðlaukinn og avókadóið í litla bita og setjið saman í skál. Kreistið ferskan limesafa yfir og blandið öllu varlega saman svo avókadóið haldi lögun sinni. Kryddið með salti og nýmöluðum svörtum pipar eftir smekk.

Látið salsað standa í nokkrar mínútur áður en það er borið fram svo bragðið nái að blandast vel saman.

Berið taco-in fram heit og stökk, beint úr ofninum, með ferska salsanu, salsa-sósu og góðri skeið af sýrðum rjóma.

Verði ykkur að góðu!


Ég ætla að skora á mikinn matgæðing Baldur Bjarka Jóhannson, Hann talar mikið um hæfileika sýna í matargerð og núna þarf hann að standa undir nafni.

Matgæðingar eru beðnir að senda á dfs@dfs.is uppskrift ásamt mynd af sér eigi síðar en á sunnudegi.

Nýjar fréttir