Jarðboranir hf. hafa undirritað samning við Orkuveituna um borun á fyrstu rannsóknarholunni í þriðja áfanga rannsóknarverkefnisins IDDP, en með því er leitað nýrra leiða til nýtingar á ofurheitum jarðhita.
Stefnt er að því að Jarðboranir hefji borun á Nesjavöllum síðar á þessu ári, en verkefnið, sem gengur undir nafninu IDDP-3, er eitt metnaðarfyllsta rannsóknar- og þróunarverkefni sem ráðist hefur verið í. Markmið þess er að nýta ofurheitan jarðhita, þar sem hiti og þrýstingur er mun hærri og meiri en í hefðbundnum vinnsluholum. Með því skilar hver hola fyrir sig margfalt meiri orku en nú er mögulegt og eykur þannig skilvirnkni og sjálfbærni jarðhitavinnslu.

„Það er okkur mikil ánægja að hafa undirritað samning við Orkuveituna um þessa mikilvægu framkvæmd. Verkefnið á sér langa sögu, en þegar hafa verið boraðar tvær djúpborunarholur sem gera okkur kleift að nálgast þennan þriðja áfanga með borun á Nesjavöllum með mikilvæga þekkingu í farteskinu. Áhugi á ofurheitum jarðhita hefur aukist verulega á undanförnum árum, enda getur slík nýting umbylt allri orkuvinnslu, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Við tökumst á við þetta stóra verkefni með tilhlökkun og reynslumikið starfsfólk okkar er tilbúið að hefjast handa við þennan tímamótaáfanga,“ segir Sveinn Hannesson, forstjóri Jarðborana.
Jarðboranir hafa um árabil verið í fararbroddi á þessu sviði, bæði hér og víða erlendis og starfsfólk fyrirtækisins hlakkar til samstarfs við þá aðila sem að IDDP verkefninu koma; Orkuveituna, Landsvirkjun, HS Orku og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.


