13.4 C
Selfoss

Fyrsta sperran reist við viðbyggingu íþróttahússins

Vinsælast

Framkvæmdir við viðbyggingu íþróttahússins við Skólamörk 2 í Hveragerði halda áfram. 17. júlí sl. var fyrsta sperran reist. Markar það mikilvægan áfanga í uppbyggingu nýrrar æfinga- og keppnisaðstöðu fyrir íþróttastarf í bænum. Viðbyggingin er samtals um 1.800m2.

Búið er að steypa upp flest alla veggi auk botnplötu í áhaldageymslu og í fimleikagryfju en eftir er að steypa innveggi og botnplötu í íþróttasal. Hluti af stálvirkinu, sem fer í yfirbyggingu hússins er komið inn á geymslusvæði bæjarins og er reiknað með því að byrjað verði að reisa það á allra næstu vikum.

Gert er ráð fyrir að viðbyggingin verði fokheld fyrir 15. desember nk. og að viðbyggingin verði tekin í notkun veturinn 2027-2028.

Nýjar fréttir