15 C
Selfoss

Sumarpeysan Sólrún

Vinsælast

Í samstarfi við Bobbý bætist við ný uppskrift í hannyrðahornið. Prjónauppskrift Bobbýjardætra að þessu sinni er sumarpeysan Sólrún.

Stærðir XXS XS S M L XL XXL
Yfirvídd 78 cm 82 cm 86 cm 98 cm 104 cm 110 cm 120 cm
Lengd fráhandveg 31 cm. 31 cm.  32 cm 32 cm 32 cm 34 cm 34 cm
 Ermalengd 3/4 16 cm. 16 cm  16 cm  18cm  18 cm  18 cm  18 cm

 

Athugið að fólk er allskonar og því er góð regla að taka mál af eiganda flíkurinnar, sérstaklega yfirvídd (tekið undir höndum og yfir brjóst). Og ermalengd. Stærðir hér að ofan eru aðeins til viðmiðunar.

GARN:

Bamboo frá Viking-garn 50 gr. = 110 m
Garnið fæst hjá Bobbý Hveragerði og bobby.is
Prjónfesta: 22 L / 10 cm á prjóna nr.3.5

Stærðir XXS XS S M L XL XXL
Litur 1 150 gr. 150 gr. 150 gr. 200 gr. 200 gr. 250 gr. 250 gr
Litur 2 100 gr 100 gr. 150 gr. 150 gr. 150 gr. 150 gr. 150 gr.
Litur 3 100 gr. 150 gr. 150 gr. 150 gr. 150 gr. 150 gr. 200 gr.

Athugið að garnmagn miðast við stutterma peysu

ÞAÐ SEM ÞARF:

Hringprjóna 40 og 80 cm. langa nr. 3 og 3.5. Sokkaprjóna nr. 3 eða Crazy Trio prjóna nr. 3. Nál til að ganga frá endum.

TÆKNIUPPLÝSINGAR:

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, laskinn er mótaður með gatamynstri (sjá mynsturteikningu).

SUMARPEYSAN SÓLRÚN – UPPSKRIFT:

Fitjið upp 104 – 104 –108 – 112 – 116 – 116 – 116 lykkjur á prjón nr. 3 með lit nr. 1, setjið prjónamerki í byrjun til að marka upphaf og endi umferða.
Prjónið stroff 1 slétt og 1 brugðin 10 – 12 umferðir. Mælum með að prjóna sléttu lykkjuna snúna í stroffinu (prjónað aftan í sléttu lykkjuna) með þessari aðferð heldur stroffið forminu betur.

ÚTAUKNING:

Prjónið eina umferð slétt og skiptið um leið yfir á prjóna nr. 3.5 mm. í sömu umferð eru prjónamerkin sett í laskalykkjurnar: ATH í stærðum XS – XL – XXL þarf að auka út um 4 lykkjur í fyrstu umferð.

Setjið prjónamerki nr. 1 í fyrstu lykkjuna í umferðinni, prjónið 18 – 16 – 14 – 14 – 14 – 12 – 10 lykkjur (ermalykkjur), prjónamerki nr. 2 í næstu lykkju, prjónið 32 – 36 – 40 – 42 – 44 – 46 – 48 lykkjur (framstykki), prjónamerki nr. 3 í næstu lykkju, prjónið 18 – 16 – 14 – 14 – 14 – 12 – 10 lykkjur (ermalykkjur), prjónamerki nr. 4 í næstu lykkju, prjónið 32 – 36 – 40 – 42 – 44 – 46 – 48 lykkjur (bakstykki).

Í annarri umferð hefst útaukningin, hún er samkvæmt teikningu og byrjar þannig: Prjónið laskalykkjuna (lykkjuna með prjónamerkinu) sláið upp á prjóninn og prjónið að næsta prjónamerki, sláið upp á prjóninn prjónið laskalykkjuna sláið upp á prjóninn, prjónið að næsta prjónamerki, sláið upp á prjóninn prjónið laskalykkjuna, sláið upp á prjóninn, prjónið að næsta prjónamerki sláið upp á prjóninn. Þá er fyrstu útaukningarumferð lokið.

Prjónið eina slétta umferð á milli útaukninga.

Mynstur er endurtekið 8 – 9 – 10 – 11 – 12 – 13 – 13 sinnum.

Síðasta umferðin á berustykkinu er prjónuð með lit nr. 2 um leið er aukið út um 12 lykkjur á stærð XXL ca. 37 lykkjur á milli útaukninga.

Þegar síðustu útaukningu er lokið eru lykkjurnar samtals 296 – 324 – 352 – 376 – 400 – 432 – 444.

 

BOLUR:

Setjið ermalykkjur á snúru/band, (fyrri ermi) 66 – 70 – 74 – 80 – 86 – 90 – 91 lykkjur

Fitjið upp 4 – 4 – 5 – 5 – 6 – 6 – 5 – lykkjur undir fyrri ermi. Prjónið 82 – 92 – 105 – 113 – 119 – 130 – 131 lykkjur (framstykki) setjið ermalykkjur á snúru/band, (seinni ermi) 66 – 70 – 74 – 80 – 86 – 90 – 91

Fitjið upp 4 – 4 – 5 – 5 – 6 – 6 – 5 lykkjur undir seinni ermi. Prjónið 82 – 92 – 105 – 113 – 119 – 130 – 131 lykkjur (bakstykki).

Bolur = 172 – 192 – 220 – 226 – 240 – 260 – 272 – lykkjur.

Prjónið með lit nr. 2 sjö umferðir í viðbót samtals átta umferðir, skiptið yfir í lit númer 1 og prjónið þrjár umferðir, skiptið aftur í lit númer 2 og prjónið átta umferðir.

Prjónið rendurnar eins og hér segir þar til réttri sídd er náð:
Litur 3        9 umferðir
Litur 2        3 umferðir

Endið á lit nr. 3 og gerið stroff með lit nr. 3

Skiptið yfir á hringprjón nr. 3 og prjónið stroff ca. 4-6 cm. stroff ein slétt og ein brugðin,ef þið notuðuð snúna lykkju í hálsmálið er fallegra að gera það hér líka og eins framan á ermunum. Fellið af með ítalskri affellingu.

ERMAR:

Prjónið upp lykkjurnar sem búnar voru til undir ermunum og byrjið undir miðri ermi. Prjónið upp 2 – 2 – 2 – 2 – 3 – 3 – 2 . Færið lykkjurnar af hjálparbandinu/snúrunni yfir á prjóninn 66 – 70 – 74 – 80 – 86 – 90 – 94 lykkjur endið á prjóna upp 2 – 2 – 3 – 3 – 3 – 3 – 3

Prjónið rendurnar á ermunum eins og þær voru prjónaðar á bolnum.

Fækkið um ca. 20 – 26 lykkjur jafnt yfir síðasta prjóninn fyrir stroff á öllum stærðum.

Val er um sídd á ermum.

Ef valið er stutterma þá eru prjónaðir ca. 8/10 – 10/12 cm. áður en skipt er yfir á prjóna nr. 3 og prjónað stroff ca. 4 – 6 cm. með lit nr. 3 fellið af með ítalskri affellingu.

Ef valið er að gera hálfermar (að olnboga) eða síðar ermar, er haldiðáfram með rendurnar eins og á bol og stroff gert með lit nr 3 eins og á bol, fellið af með ítalskri affellingu.


Okkur þætti vænt um að ef þú setur peysuna á samfélagsmiðla að merkja okkur í póstinum @bobbyjardaetur

Ef aðstoðar er þörf hafið samband við okkur í tölvupósti info@bobby.is.

Uppskrift:
Bobbýjardætur
Breiðumörk 13, Hveragerði – Sími 774 2324
info@bobby.is – www.bobby.is

Nýjar fréttir