15 C
Selfoss

Dansakademían fagnar glæsilegum árangri á Dance World Cup 2026

Vinsælast

Eldra keppnislið Dansakademíunnar náði frábærum árangri á Dance World Cup 2026, sem haldið var í Dublin á Írlandi dagana 8.–18. júlí.

Í keppnisliði Dansakademíunnar skólaárið 2025–2026 voru 31 nemandi og skiptist liðið í yngra og eldra keppnislið. Sú hefð hefur skapast að nemendur á aldrinum 10–13 ára keppa innanlands, en nemendur 14 ára og eldri fá tækifæri til að keppa erlendis ef þeir vinna sér inn keppnisrétt. Að þessu sinni skipuðu ellefu framúrskarandi dansarar eldra keppnisliðið og fengu þær tækifæri til að keppa og sækja danstíma á einum stærsta og virtasta dansviðburði heims.

Þær stóðu sig með miklum glæsibrag og náðu markmiði sínu, sem var að skora yfir 80 stig í öllum sínum flokkum, en það telst afar góður árangur. Þær kepptu með fimm atriði í ólíkum keppnisflokkum og stigahæsta atriðið hlaut 85,6 stig og hafnaði í 7. sæti í sínum flokki. Sá árangur undirstrikar þann stöðuga vöxt og þá metnaðarfullu uppbyggingu sem hefur átt sér stað í starfi Dansakademíunnar undanfarin ár. Nemendur verða sífellt sterkari og reynslumeiri og það verður spennandi að fylgjast með því hvert framhaldið leiðir þessa metnaðarfullu og efnilegu dansara.

Að baki keppnisliðinu standa Ástrós og Gerður, skólastjórar Dansakademíunnar. Þær eru jafnframt danshöfundar allra þeirra keppnisatriða sem skólinn flutti á mótinu. Ásamt þeim er öflugt foreldrateymi sem á sannarlega hrós skilið fyrir ómetanlegan stuðning við dansarana og fyrir að leggja sitt af mörkum til að hjálpa þeim að láta drauma sína rætast.

Myndir fyrir neðan: aðsendar.

Nýjar fréttir