„Tónar tveggja alda“ er yfirskrift næstu tónleika Tónlistarhátíðarinnar Englar og menn í Strandarkirkju. Tónleikarnir fara fram sunnudaginn 19. júlí kl. 14.
Á tónleikunum koma fram stórsöngvararnir Dísella Lárusdóttir sópran og Kolbeinn Jón Ketilsson tenór ásamt Matthildi Önnu Gísladóttur píanóleikara. Þau flytja fjölbreytta og spennandi dagskrá úr heimi tónbókmenntanna.
Dísella Lárusdóttir hefur komið víða við í tónleikahaldi og plötuútgáfu en er einkum þekkt fyrir störf sín sem óperusöngkona. Hún hefur meðal annars sungið við Metropolitan-óperuna í New York. Árið 2022 hlaut hún Grammy-verðlaun fyrir bestu óperuupptökuna og varð þar með annar Íslendingurinn til að vinna til verðlaunanna.
Kolbeinn Jón Ketilsson hefur sungið mörg af stærstu tenórhlutverkum óperubókmenntanna. Hann hefur komið fram í óperuhúsum á Norðurlöndunum, í Norður-Ameríku og víða um Evrópu. Þá kemur hann reglulega fram sem ljóðasöngvari og einsöngvari í hljómsveitarverkum.
Matthildur Anna Gísladóttir nam við Listaháskóla Íslands og Royal Academy of Music í London, þar sem hún lauk meistaranámi í meðleik árið 2009. Árið 2014 lauk hún meistaranámi í óperuþjálfun frá Royal Conservatoire of Scotland. Þar var hún á fullum námsstyrk og hlaut James H. Geddes Repetiteur-verðlaunin. Matthildur hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum hér heima og erlendis auk þess að taka þátt í fjölda óperuuppsetninga. Hún starfar nú við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
Miðasala verður við innganginn.
Tónlistarhátíðin Englar og menn stendur yfir í Strandarkirkju í júlí. Nánari upplýsingar um hátíðina og dagskrá hennar má finna á Facebook-síðu Engla og manna.

