15 C
Selfoss

Strangheiðarleg sveppasúpa

Vinsælast

Jón Ægir er sunnlenski matgæðingur vikunnar.

Ég þakka Páli kærlega fyrir áskorunina, þó mér finnist það reyndar dálítið ósanngjarnt að þurfa að fylgja honum eftir sem matgæðingur vikunnar. Þeir sem komast í matarboð hjá Palla verða enda seint sviknir.

Eitt hef ég þó lagt töluverða áherslu á að ná góðum tökum á í eldhúsinu og það er gamla góða sveppasúpan. Hún hentar einstaklega vel sem forréttur en getur einnig staðið ein og sér sem létt máltíð. Miðað við veðráttuna hér á Suðurlandi undanfarið er fátt betra en heit og bragðgóð súpa eftir blautan og kaldan dag.

Sveppasúpa

  • 2 vænar matskeiðar smjör
  • 1 askja hvítir sveppir
  • 1 askja kastaníusveppir (að sjálfsögðu Flúðasveppir)
  • 2–3 hvítlauksgeirar, pressaðir
  • ½ dl steinselja, smátt söxuð
  • Smásletta af koníaki, um hálfur tappi
  • 500 ml rjómi
  • 500 ml vatn
  • 1 kjúklingakraftsteningur
  • 1 sveppakraftsteningur
  • ½ askja rjómaostur
  • Salt og pipar eftir smekk

Bræðið smjörið í rúmgóðum potti. Skerið sveppina niður og steikið þá ásamt hvítlauknum þar til sveppirnir eru orðnir vel mjúkir. Kryddið með salti og pipar.

Bætið steinseljunni út í og hellið því næst koníakinu saman við. Látið steikjast í stutta stund áður en smáslettu af rjómanum er bætt út í. Leyfið rjómanum að sjóða vel niður.

Hellið þá afganginum af rjómanum og vatninu út í pottinn og náið upp suðu. Bætið kraftteningunum og rjómaostinum saman við og hrærið þar til osturinn hefur bráðnað. Látið súpuna malla við vægan hita í um 30 mínútur.

Berið súpuna fram með ristuðu súrdeigsbrauði, smjöri og osti.

Þegar skera þarf mikið magn af sveppum getur verið sniðugt að nota eggjaskera. Sú aðferð er bæði fljótleg og einföld og síðan ég uppgötvaði hana hef ég varla skorið sveppi með öðrum hætti.

Fyrir þá sem eru ekki hrifnir af áferðinni á sveppum en kunna vel að meta sveppasúpu er tilvalið að mauka súpuna með töfrasprota þar til hún verður slétt og mjúk.


Ég ætla að skora á litla bróður minn og snilldarkokkinn Rúnar Helga Sigmarsson að vera næsti matgæðingur vikunnar. Hann er natinn í eldhúsinu og lumar eflaust á einhverju góðgæti.

Nýjar fréttir