13.4 C
Selfoss

Rjómabúið sett í gang um helgar

Vinsælast

Rjómabúið á Baugsstöðum er opið um allar helgar í júlí og ágúst. Safnið tekur á móti gestum á laugardögum og sunnudögum kl. 13–18 og býður upp á hnitmiðaða kynningu á starfsemi rjómabúsins, sem var starfrækt á árunum 1905 til 1952. Ef allar aðstæður eru fyrir hendi verða vélar búsins gangsettar. Rjómabúið er eina rjómabú landsins sem hefur varðveist með upprunalegum búnaði og hefur verið opið almenningi sem safn frá 1975. Rjómabúið var friðlýst af enningarráðherra samkvæmt lögum á aldarafmælinu árið 2005. Það stendur við Baugsstaðaá, rétt norðan Knarrarósvita, austan Stokkseyrar. Rjómabúið er rekið af Byggðasafni Árnesinga.

Nýjar fréttir