Iðkendur frá Frjálsíþróttadeild Selfoss átti afar glæsilega daga á Gautarborgarleikunum sem fram fóru á Slottsskogsvallen í Gautaborg dagana 25.–28. júní.
Um 3.000 keppendur frá 27 þjóðum tóku þátt í mótinu þar sem iðkendur skiluðu fjölmörgum persónulegum bætingum, HSK-metum, Íslandsmetum og verðlaunasætum.
Bryndís Embla Einarsdóttir sigraði í spjótkasti U18. Hún kastaði spjótinu hvorki meira né minna en 57,02m sem er hennar besti árangur með 500gr. spjót.
Kastið er mótsmet á Gautarborgarleikunnum, Íslandsmet í U18 & nýtt HSK met. Kastið skaut henni í toppsætið U18 í Evrópu og á þriðja sæti heimslistans. Algerlega frábær árangur hjá Bryndísi Emblu.
Hægt er að lesa nánar um frammistöðu keppanda á Gautaborgarleikunum á heimasíðu umf. Selfoss.


