10 C
Selfoss

Ný brunavarnaáætlun Árnessýslu tekur gildi

Vinsælast

Þriðjudaginn 5. maí var ný brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu (BÁ) samþykkt. Áætlunin er samþykkt af HMS, stjórn BÁ og sveitarfélögum á starfssvæði slökkviliðsins sem eru 8 talsins.

Brunavarnaáætlanir eru öflugt tæki til að skapa heildstæða yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast á við hættur á sínu svæði í þeim tilgangi að vernda líf og eignir manna.

„Það er mjög ánægjulegt að brunavarnaáætlunin okkar sé komin út og samþykkt af sveitarfélögum í Árnessýslu og HMS, en hún hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið. Í mörg horn þarf að líta við gerð brunavarnaáætlana og margt sem þarf að slípa til eins og í allri annarri áætlunargerð,“ segir Pétur Pétursson, slökkviliðstjóri BÁ í tilkynningu frá HMS.

„Með samþykkt og útgáfu brunavarnaáætlunarinnar kemur berlega í ljós að eigendur slökkviliðsins, sem eru sveitarfélögin í Árnessýslu eru samstíga um þær lagalegu skyldur sem á herðar þeirra eru lagðar um málaflokkinn. Að mönnun, viðbragð, tækja- og húsakostur séu í takt við þær kröfur og þarfir sem þurfa að vera til staðar, til þess að bregðast við þeim atburðum og verkefnum sem slökkviliðsmenn takast á við í sínum störfum hvort heldur sem er í fullu starfi eða hlutastarfi.“

Brunavarnaáætlunin er aðgengileg á vef Árnessýslu en einnig er hún birt á vef HMS.

Nýjar fréttir