10 C
Selfoss

Frábær árangur Berserkja á Íslandsmótinu í No-Gi BJJ

Vinsælast

Íslandsmótið í No-Gi brasilísku jiu-jitsu (BJJ) fór fram laugardaginn 30. maí í Ármannsheimilinu við glimrandi aðstæður. Keppni í fullorðinsflokkum var sérstaklega hörð að þessu sinni, en alls mættu 73 keppendur til leiks frá klúbbum landsins.

Í flokki hvítbeltinga í -83 kg flokki gerði Emil Waagfjörð sér lítið fyrir og landaði Íslandsmeistaratitlinum. Emil, sem kemur frá júdó bakgrunni, sýndi feykilega flott köst og glæsilega tækni sem bar andstæðinga hans ofurliði. Hann kórónaði svo daginn með því að klára allar sínar glímur á uppgjafartaki.

Fannar Júlíusson, fór hreinlega á kostum í geysisterkum 8 manna flokki blábeltinga í -76 kg. Fannar sýndi algjöra yfirburði í sínum þremur glímum; hann fékk ekki á sig einasta stig á öllu mótinu og sigraði sömuleiðis alla sína andstæðinga með uppgjafartaki.

Egill Blöndal tók 1. sætið í sínum þyngdarflokki og 3. Sæti í opnum flokki.

Aðrir keppendur klúbbsins stóðu sig sömuleiðis frábærlega og sýndu mikla seiglu. Þröstur Valsson glímdi af krafti og tók 4. sætið í sterkum +100 kg flokki blábeltinga og Daníel Sigurðsson landaði 5. sætinu í -76 kg flokki hvítbeltinga.

Nýjar fréttir