10 C
Selfoss

Húsmæðraorlof – vörn gegn einmanaleika

Vinsælast

Enn og ný getum við haldið orlof húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu sem er mikið gleðiefni því okkar orlof er sannarlega í takt við tímann. Frá 1976 hefur húsmæðraorlof okkar verið með sama sniði, aldrei farið í utanlandsferðir heldur alltaf samvera ýmist í skólum eða hótelum og oftast hér í heimabyggðum sem þá styrkir innviði þeirra.

Dagana 20.- 24. september næstkomandi verðum við eins og síðustu ár á Hótel Örk í Hveragerði þar sem aðstaðan er til fyrirmyndar – gott aðgengi, lyfta, margir salir til afnota, sundlaug, gufubað og heitir pottar. Á hótelið þakkir skildar fyrir gott samstarf og góðan viðurgjörning. Ekki spillir fyrir að Hveragerði er fallegur bær til gönguferða og öll nauðsynleg þjónusta þar til staðar.

Í orlofinu er skipulögð dagkrá alla dagana, stólajóga á morgnana og bingó, fyrirlestur eða annað skemmtilegt á kvöldin. Þess utan geta konurnar slakað á eða notið samverunnar í prjónaskap og spjalli. Einn dag er alltaf farið í dagsferð með rútu og áhugaverðir staðir skoðaðir.

Orlofið hefur ávallt verið vel sótt – mættu 86 konur í fyrra – og almenn ánægja með það og er von okkar og trú að konur fái að njóta þess áfram um ókomin ár. Orlofið er fyrir allar konur sem hafa staðið fyrir heimili og þar sem það getur verið góð vörn gegn einmanaleika hvetjum við nýjar konur til að slást í hópinn, njóta notalegrar samveru og kynnast fleiri konum. Konur af erlendum uppruna eru velkomnar, en tekið skal fram að allt talað og ritað mál fer fram á íslensku svo skilningur á tungumálinu þarf að vera til staðar. Hittumst í Hveragerði!

Nýjar fréttir