4 C
Selfoss

Arsenalmenn fögnuðu Englandsmeistaratitli á Selfossi

Vinsælast

Mikil stemning ríkti í miðbæ Selfoss um helgina þegar stuðnings- fólk enska knattspyrnuliðsins Arsenal kom saman til að fagna Englandsmeistaratitli félagsins. Samkoman fór fram á Sviðinu í miðbænum þar sem um 250 stuðningsmenn og konur mættu til að taka þátt í hátíðarhöldunum.

Fjölskyldustemning var ríkjandi á svæðinu þar sem fólk á öllum aldri kom saman til að gleðjast yfir árangri félagsins. Þá var Björn Ingi Gíslason útnefndur heiðursfélagi Arsenalklúbbsins á Íslandi í hálfleik viðburðarins.

Arsenalklúbburinn á Íslandi var stofnaður árið 1982 af tveimur Selfyssingum og hefur félagið átt dyggan stuðningshóp á Suðurlandi í gegnum tíðina. Sunnlenskir Arsenalstuðningsmenn voru fjölmennir á viðburðinum og létu vel í sér heyra þegar bikargleðin stóð sem hæst.

Kjartan Adolfsson, gjaldkeri Arnselklúbbsins, og Björn Ingi Gíslason. Mynd: Kjartan Björnsson.

Nýjar fréttir