4 C
Selfoss

Vel heppnað 100 ára afmæli Reykholts fagnað í sól og blíðu

Vinsælast

Um 250 manns komu saman í Reykholti í Bláskógarbyggð til að fagna 100 ára afmæli þann 20. maí sl. á einstaklega fallegum degi þar sem sól og blíða settu svip sinn á hátíðahöldin. Dagurinn þótti í alla staði afar vel heppnaður.

Við hátíðlega athöfn opnaði Bjarni Kristinsson á Brautarhóli, kaupmaður í Bjarnabúð, nýtt söguskiltasvæði með því að klippa á borða. Jafnframt afhjúpaði hann eftirmynd af Jóni Halldórssyni, þeim manni sem lagði grunninn að starfsemi í Reykholti með því að gefa land og fé undir skóla fyrir réttum 100 árum.

Bjarni Harðarson flutti erindi um Jón Halldórsson og upphaf Reykholts og rifjaði upp merkilega sögu staðarins.

Börn úr Reykholtsskóla fluttu söngatriði undir stjórn Unnar Malínar og undirleik annaðist Karl Hallgrímsson.

Einnig var boðið upp á sögugöngu um Reykholt undir leiðsögn Sveins Sælands á Espiflöt þar sem saga svæðisins var rakin fyrir gestum.

Gestum var boðið upp á léttar veitingar við opnunina, hverabrauð í göngunni og að lokum kaffi í Aratungu.

 

Nýjar fréttir