Sögulegur áfangi í íslenskri viskígerð átti sér stað þann 22. maí sl. þegar Eimverk Distillery og Caves of Hella luku formlega við átöppun á einstöku fimm ára Flóka viskíi sem þroskast hefur í manngerðu Hellunum á Hellu frá árinu 2021.
Við hátíðlega athöfn djúpt inni í hellunum voru þrjár eikartunnur af Flóka viskíi tappaðar beint á flöskur eftir samfellt fimm ára þroskunarferli við einstakar náttúrulegar aðstæður. Um er að ræða afar takmarkað upplag af tunnustyrktu viskíi, um 53,5% alc/vol, sem þegar hefur vakið mikla athygli meðal safnara og unnenda hágæða viskís.

„Það var virkilega spennandi stund þegar innsigli fyrstu tunnunnar var rofið eftir 5 ára geymslu. Sérfræðingarnir hjá Eimverk voru mjög ánægðir með bragð og karakter viskísins og gestir höfðu á orði að það væri sérlega gott og mjúkt. Flöskur með þessu einstaka viskí verða fáanlegar hjá Eimverk innan skamms og í kjölfarið verður aftur fyllt á tunnurnar því ljóst er að aðstæður í hellunum eru kjörnar fyrir viskí.” Segir Ólöf Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri Hellanna á Hellu, í samtali við Dagskrána.

Brú á milli fortíðar og framtíðar
Samstarfið hefur verið farsælt. Tugþúsundir gesta hafa virt tunnurnar fyrir sér á þroskunartímanum, lært að viskíið sé unnið úr íslensku byggi sem ræktað er í næsta nágrenni hellanna og nefnt eftir Hrafna-Flóka.
„Þetta verkefni tengir okkur órjúfanlega við upprunann og íslenska menningarsögu,“ segir talsmaður Eimverk Distillery. „Á sama tíma og við drögum þessa dýrmætu dropa úr djúpum hellanna, horfum við fram á veginn en í Bjálmholti við Hellu rís nú nýtt eimingarhús Eimverks, sem verður glæsilegur áningarstaður fyrir gesti, en fyrirhuguð opnun þess er sumarið 2027“.


