0 C
Selfoss

Stærsta píla landsins á Hvolsvelli

Vinsælast

Rangárþing eystra hefur eignast nýja píludeild sem starfar undir hatti skotfélagsins Skyttnanna. Aðstaðan þykir ein sú glæsilegasta á landinu og mun vafalítið verða lyftistöng fyrir píluíþróttina á svæðinu. Við opnunina var jafnframt afhjúpuð þriggja metra löng píla sem mun héðan í frá prýða loftið í salnum.

Aðdragandinn að stofnun deildarinnar hófst í lok síðasta árs þegar hugmyndin kviknaði fyrst hjá þeim Guðmundi Jónssyni, Andra Má Óskarssyni og Sigurði Orra Baldurssyni.

„Eftir að þessi hugmynd kviknaði hjá okkur í lok desember er loksins komið að stóru stundinni,“ segir Guðmundur Jónsson, sem einnig er verslunarstjóri Krónunnar á Hvolsvelli. „Eftir endalausar pælingar, hugmyndavinnu og smá svita hjá okkur Andra og Orra er þetta loksins að verða að veruleika – og við gætum ekki verið spenntari.“

Samvinna og stuðningur fyrirtækja lykilatriði

Uppbygging aðstöðunnar tókst með dyggum stuðningi fyrirtækja á svæðinu sem styrktu kaup á nauðsynlegum búnaði. Guðmundur leggur mikla áherslu á þakklæti í þeirra garð: „Við erum ótrúlega þakklátir öllum þeim fyrirtækjum sem studdu við bakið á okkur og trúðu á verkefnið frá upphafi. Án þeirra hefði þetta einfaldlega ekki verið mögulegt og eiga þessi fyrirtæki hrós skilið fyrir frábæran stuðning.“

Sveitarfélagið hefur einnig lagt sitt af mörkum með því að leggja til húsnæði fyrir deildina. „Við höfum varið síðustu dögum við að standsetja dæmið og smíða það sem þarf til að gera topp-aðstöðu. Þetta er líklega ein flottasta aðstaðan á landinu,“ bætir Guðmundur við.

Guðmundur reynir að kasta pílunni. Mynd: Aðsend.

Risapílan smíðuð í heimabyggð

Ekki nóg með glæsilega aðstöðu þá trónir stærsta píla landsins nú í loftinu í salnum. Pílan, sem er um þrír metrar á lengd, var smíðuð af hagleiksmönnum í nágrenninu eftir hugmynd frá strákunum.

„Þau sem þekkja mig vita kannski að ég fæ oft svolítið brenglaðar hugmyndir!“ segir Guðmundur. „Nýjasta hugmyndin var að láta útbúa RISA pílu fyrir aðstöðuna. Ég fékk girðingarstaura í Fóðurblöndunni og Sveinbjörn hjá SS smíðaði oddinn fyrir okkur. Næst hafði ég samband við Simma, nágranna minn, algjöran snilling á rennibekknum í Krappa. Hann renndi píluna sjálfa, og að lokum sá ég um málningu og skreytingar. Við erum rosalega sáttir með útkomuna!“

Haraldur Birgisson landsliðsmaður í pílu leiðbeinir gestum við opnun aðstöðunnar. Mynd: Aðsend.

Keppni, samvera og öflugt félagsstarf

Píludeild Skyttnanna hefur nú þegar verið samþykkt inn í Íslenska Pílusambandið (ÍPS). Markmið félagsins er að bjóða upp á vettvang fyrir bæði byrjendur og lengra komna, þar sem áherslan er á góða stemningu, félagsskap og skemmtilega keppni.

Opið hús var haldið fyrir helgi þar sem landsliðsmaðurinn Haraldur Birgisson mætti og kenndi áhugasömum réttu handtökin. „Opna húsið var alveg meiri háttar og var frábær mæting,“ segir Guðmundur ánægður með viðtökurnar.

Æfingar eru nú komnar á fullt skrið og er hægt að fylgjast með starfinu á facebook síðu píludeildarinnar

Risapílan í smíðum. Mynd: Aðsend.

Nýjar fréttir