5 C
Selfoss

Góður árangur hjá Berserkjum

Vinsælast

Glímufélagið Berserkir tók þátt í hvítbeltamóti VBC þann 21. mars. Mótið er ætlað byrjendum í íþróttinni og keppendum með hvít eða blá belti. Alls tóku 63 keppendur þátt þennan dag.

Berserkir sendu fimm keppendur til leiks sem stóðu sig afar vel. Uppskeran var ein gullverðlaun, tvö silfur og ein bronsverðlaun. Keppendur sýndu mikla baráttu og fjölmargar skemmtilegar glímur, þar sem uppgjafartök sáust í nokkrum viðureignum.

Úrslit keppenda Berserkja:

  • Sigríður Jóna Rafnsdóttir – 1. sæti (hvítbelti, -64 kg)
  • Arnar Högni – 2. sæti (hvítbelti, -70 kg)
  • Daníel Sigurðsson – 2. sæti (hvítbelti, -88 kg)
  • Fannar Júlíusson – 3. sæti (blábelti, -76 kg)
  • Emil Waagfjörð – 5. sæti (hvítbelti, -82 kg)

Frammistaða keppenda var til fyrirmyndar og miklar bætingar hjá hópnum.

Nýjar fréttir