3.4 C
Selfoss

Fiskréttur sem slær í gegn

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Sigurður Hrafn Arason.

Takk kærlega, Julita Irena fyrir að tilnefna mig sem matgæðing vikunnar. Ég er nú ekki sá besti í eldhúsinu en tel mig best geymdan á grillinu, en þar sem ég nenni ekki að moka grillið mitt út þá er ég hér með ágætis uppskrift að fiskrétt sem karlfaðir minn kenndi mér.

800 gr þorskhnakki
1 krukka fetaostur
1 krukka rautt pestó
Nokkrar saxaðar döðlur
2 pressuð hvítlauksrif
Salt og pipar.

Fiskurinn er settur í eldfast mót og hluti af olíunni af fetaostinum er hellt yfir fiskinn og hann svo kryddaður með salti og pipar. Blandið svo saman pestóinu, fetaostinum, döðlum og hvítlauk saman og setjið yfir þorskinn. Bakið þetta svo í ofni við 180° í ca 20 mín.

Gott er að hafa með þessu hrísgrjón að eigin vali og gott salat.

Góð köld sósa sem gott er að hafa með.

1 dós sýrður rjómi
Ca 1 msk. dijon sinnep
Smá hvítlaukskrydd og dill.


Ég ætla að tilefna hann Atla Snæ en hann er timbursölumaður, landvörður og mikill veiðimaður og býst ég við að hann leyni á eins og einni uppskrift.

Nýjar fréttir