Á-listinn í Rangárþingi ytra, hreyfing áhugafólks um sveitarstjórnarmál, býður fram til sveitarstjórnarkosninga í fimmta sinn. Listinn var stofnaður árið 2010 og er óháður stjórnmálaflokkum á landsvísu. Á-listinn fer nú með meirihluta í sveitarstjórn og óskar eftir áframhaldandi stuðningi íbúa sveitarfélagsins til að halda því starfi áfram.
Frá upphafi hefur Á-listinn lagt áherslu á að bjóða fram fólk sem er virkt í samfélaginu og hefur fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og félagsstarfi, bæði úr þéttbýli og dreifbýli. Frambjóðendur eiga það sameiginlegt að vilja vinna saman að uppbyggingu og bættum lífsgæðum íbúa Rangárþings ytra.
Á félagsfundi Á-listans í dag, 14. mars 2026, var tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi samþykkt einróma. Frambjóðendur endurspegla áherslur Á-listans um fjölbreyttan bakgrunn og góða tengingu við samfélagið. Jöfn kynjaskipting er á listanum og jafnvægi á milli búsetu í þéttbýli og dreifbýli.
Í efstu fjórum sætum listans er fólk sem hefur víðtæka reynslu af stjórnsýslu sveitarfélagsins, bæði úr nefndum og sveitarstjórn. Í fimmta sæti listans er nýr frambjóðandi, Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, sem hefur mikla þekkingu á starfsemi sveitarfélagsins. Eiríkur starfaði um árabil sem markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra og hefur auk þess verið virkur í félagsstarfi, m.a. sem formaður Hestamannafélagsins Geysis. Ef Á-listinn heldur meirihluta eftir kosningar mun Eiríkur Vilhelm Sigurðarson verða ráðinn sveitarstjóri.
Fréttatilkynning frá Á-listanum
Framboðslisti Á-listans 2026
-
Eggert Valur Guðmundsson, sjálfstætt starfandi og oddviti.
-
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi.
-
Erla Sigríður Sigurðardóttir, sjúkraflutningamaður með stjórnunarmenntun.
-
Viðar Már Þorsteinsson, tæknifulltrúi og sveitarstjórnarfulltrúi.
-
Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, verksmiðjustjóri og sveitarstjóraefni.
-
Guðbjörg Snorradóttir, viðurkenndur bókari og þroskaþjálfi.
-
Þórunn Dís Þórunnardóttir, útungunarstjóri og sveitarstjórnarfulltrúi.
-
Gunnar Aron Ólason, upplýsingafulltrúi.
-
Anna Sóley Kjeld, í fæðingarorlofi.
-
Berglind Kristinsdóttir, verslunareigandi.
-
Daníel Freyr Steinarsson, verktaki og slökkviliðsmaður
-
Auður Erla Logadóttir, kennari og knattspyrnuþjálfari.
-
Gabríel Snær Ólafsson, pípulagninganemi.
-
Pálína S. Kristinsdóttir, kaupsýslukona.

