3.9 C
Selfoss

Vetrartónar 2026

Vinsælast

Tónleikaröðin Vetrartónar í Stokkseyrarkirkju sem hóf göngu sína í fyrra snýr aftur með glæsilega dagskrá. Að þessu sinni verða tónleikarnir fernir og fara fram fjögur miðvikudagskvöld í röð. Tónleikaröðin er liður í starfi Stokkseyrarkirkju að bjóða fólk velkomið til kirkju og njóta vandaðs tónlistarflutnings á dimmasta tíma ársins. Allir tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og er aðgangur ókeypis, en gestum gefst kostur á að leggja til frjáls framlög. Tónleikaröðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

Þann 11. febrúar verður stórsöngkonan Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzó-sópran og Tómas Eggert Guðnason píanó- og orgelleikari að flytja söngdagskrá helguð þekktum óratoríu- og óperuaríum.

18. febrúar verður Sunnlenski barítóninn Gunnlaugur Bjarnason og Sævar Helgi Jóhannsson píanóleikari flytja sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns, Jón Þórarinsson, L.v. Beethoven, Pál Ísólfsson o.fl.

18. febrúar mun hinn margrómaði miðaldatónlistarhópur Voces Thules, sem starfað hefur frá árinu 1991, fytja brot úr tíðarsöng Þorláks helga og söngva um draumfarir Sturlunga við eigin hljóðfæraundirleik þar sem leikið verður á langspil, symfón, gíttern, flautur, sekkjapípur, trommur og slagverk af ýmsum gerðum.

Þann 4. mars verður hin ástsæla söngkona Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson gítarleikari flytja vel valin þjóðlög og dægurlög innan um nýjan og fornan kvæðaskap.

Nýjar fréttir