KA og Hamar áttust við í tveimur blakleikjum um helgina í Hveragerði. KA-menn heimsóttu Hamar á laugardagskvöld þar sem liðin áttust við í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins. Hamarsmenn mættu þar mun betur stemmdir til leiks og unnu leikinn örugglega 3-0 og tryggðu sér þar með sæti í úrslitahelgi Kjörísbikarsins.

Hamarsmenn eiga því möguleika á að vinna Kjörísbikarinn aftur heim eftir vonbrigðin í fyrra þegar liðið datt út í 8 líða úrslitum. Á sunnudag áttust liðin svo aftur við í Unbrokendeildinni. Þar voru KA-menn sprækari en kvöldið áður. Það dugði þó ekki til og fór svo að lokum að Hamarsmenn unnu leikinn 3-1, eftir nokkrar spennandi hrinur. Hamarsmenn eru því sem fyrr á toppi deildarinnar með 38 stig eftir 16 leiki. KA-menn eru áfram í fjórða sæti með 33 stig en eiga leik til góða.


