6.7 C
Selfoss
Home Fréttir Dagur sauðkindarinnar heppnaðist vel

Dagur sauðkindarinnar heppnaðist vel

0
Dagur sauðkindarinnar heppnaðist vel
Viðar og Sigríður á Kaldbak ásamt barnabörnum sínum Viðari Frey, Úlfi og Helgu Björk taka við verðlaunum fyrir hæstu 5v. ána í kynbótamati 2017 í sýslunni.

Dagur sauðkindarinnar í Rangárþingi var haldinn hátíðlegur um liðna helgina í Skeiðvangi Hvolsvelli í 10. sinn. Þar komu bændur frá Þjórsá að Markarfljóti með úrvalsgripi sína og voru þeir dæmdir og verðlaunaðir. Dæmt var í þremur flokkum, lambhrútum, veturgömlum hrútum og gimbrum. Í hverjum flokki eru saman hvítir, mislitir, hyrndir og kollóttir. Dómarar voru Hermann Árnason, Reynir Stefánsson og Berglind Guðgeirsdóttir. Fjölmargir gestir komu á sýninguna sem heppnaðist vel í alla staði.

Efstu lambhrútar urðu:

  1. 434 frá Syðri – Úlfsstöðum með 39 stig fyrir BML og heildarstig 91. F: Kölski 10-920.
  2. 59 frá Kaldbak með 39 stig fyrir BML og heildarstig 90,5. F: Jökull 15-110.
  3. 337 frá Skarði með 39 stig fyrir BML og heildarstig 90,5. F: Börkur 13-952
Jón Benediksson Austvaðsholti með efsta veturgamla hrút sýningarinnar.

Efstu veturgamlir hrútar:

  1. Bikar 16-084 frá Austvaðsholti með 19 læri og 88,5 stig. Faðir Burkni 13-941.
  2. Háseti 16-468 Meiri Tungu 3 með 19 læri og 88,5 stig F: Voði 13-943.
  3. Benjamín frá Borg með 19 læri og 88,5 stig.

Efstu gimbrar urðu:

  1. 17 frá Skíðbakka 3 með 9 fyrir framp. 19,5 læri og 39 bakv. F: Gustur frá Hólmum.
  2. 338 frá Skarði með 9,5 fyrir framp. 19,5 læri og 38 bakv. F: Börkur 13-952.
  3. 119 frá Kaldbak með 9 fyrir framp. 19,5 læri og 38 bakv. F: Jökull 15-110.

Á sýningunni er litakeppni þar sem gestir velja litfegursta lambið. Að þessu sinni var það svartkrúnótt gimbur frá Hafrúnu Ísleifsdóttur Kálfholti. Fékk hún málaða mynd sem Gunnhildur Jónsdóttir frá Berjanesi gaf.

Tómas Jensson Teigi í Fljótshlíð með verðlaun fyrir ræktunarbú sýslunnar 2016.

Verðlaun voru veitt fyrir 5 vetra ær sem standa efstar í kynbótamati í sýslunni. Efsta ærin var Hæ-Fóstra 12-169 frá Kaldbak með 116,5 stig. Þá var verðlaunað ræktunarbú Rangárvallasýslu. Það er í höndum sauðfjárræktarráðunauta hverju sinni að velja það eftir ákveðnum reglum sem þeir hafa sett sér. Ræktunarbúið 2016 var Félagsbúið Teigi Fljótshlíð. Sigurður Óli Sveinbjörnsson Krossi fékk bláberjakriddað læri fyrir þyngsta dilk lagðan inn hjá SS fram að þessu. 28,9 kg sem flokkaðist í DU4.

Efnt var til happdrættis til að standa undir kostnaði við sýninguna. Gefnir voru út 200 miðar og seldust þeir allir. Allir vinningar voru gefnir og meðal vinninga voru gimbrar frá Teigi og Skarði, þriggja rétta máltíðir á þremur vstöðum í sýslunni, bækur og fleira. Einnig var Bókakaffi Bjarna Harðar með sölubás. Þá voru þær Björk Rúnarsdóttir og Hulda Brynjólfsdóttir með ullarvinnslu og sölu á garni. Styrktaraðilar sýningarinnar voru sveitarfélögin í sýslunni. Aurasel sem lánaði grindur SS og þeir sem gáfu happdrættisvinninga.